Þjóð gegn þjóðarmorði á Austurvelli: „Út með hatrið, inn með ástina“

Mót­mæla­fundir gegn þjóð­ar­morði Ísrael í Palest­ínu fóru fram á sjö stöðum víðs vegar um landið í dag, sá stærsti í Reykja­vík. Golli, ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar, fang­aði sam­stöð­una á Aust­ur­velli.

Þjóð gegn þjóðarmorði á Austurvelli:  „Út með hatrið, inn með ástina“

Mikill fjöldi fólks var saman kom­inn á Aust­ur­velli í dag til að mót­mæla þjóð­ar­morði Ísraels í Palest­ínu. Auk mót­mæla­fundar í Reykja­vík voru einnig haldnir fundir á Ísafirði, Egils­stöðum, Akureyri, Stykk­is­hólmi, Húsavík og Hólmavík í dag þar sem yfir­skriftin var: Þjóð gegn þjóð­ar­morði. 185 félög af ýmsum toga stóðu að fund­unum. 

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Lýðræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu ÖSE, var meðal ræðu­fólks á fund­inum og hélt hún afar kröf­ugt erindi. Fida Abu Libdeh, tækni­fræð­ingur og frum­kvöð­ull flutti klökk ræðu skrif­aða af Palest­ínu­fólki í Palest­ínu en hún er sjálf fædd og upp­alin þar, en flutti til Íslands sextán ára með móður sinni og syst­kynum.

Meðal ann­arra ræðu­manna var Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti ASÍ, en heild­ar­sam­tök launa­fólks, verka­lýðs­fé­lög, mann­úð­ar­sam­tök, fag­fé­lög og fleiri sam­tök tóku höndum saman til að halda mót­mæla­fund­ina þar sem almenn­ingur kom saman til að sýna sam­stöðu sína með Palest­ínsku þjóðnni og krefj­ast þess að íslensk stjórn­völd grípi til aðgerða gegn þjóð­ar­morð­inu. 

„Í nær tvö ár hefur heims­byggðin fylgst með sífellt versn­andi og óbæri­legum þján­ingum almennra borg­ara í Palest­ínu með hryll­ingi. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa lýst yfir fimmta og þar með efsta stigi hung­ursneyðar. Hún er alfarið mann­gerð af völdum Ísrael sem hefur lagt rækt­an­legt land­svæði í rúst á Gaza og lokað fyrir að mat­væli ber­ist til íbúa,“ segir í aug­lýs­ingu um við­burð­inn. „Samkvæmt gögnum ísra­elska hers­ins eru 83% þeirra sem Ísrael hefur myrt almennir borg­arar. Þar af eru a.m.k. 18.500 börn eða um 28 börn á hverjum ein­asta degi, álíka mörg og heill bekkur í grunn­skóla á hverjum degi.

Þjóð­ar­morð stendur yfir af hálfu Ísra­els­ríkis gagn­vart palest­ínsku þjóð­inni. Stríðs­glæpi Ísraels verður að stöðva.“

Birna Pét­urs­dóttir leik­kona var fund­ar­stjóri fund­ar­ins á Aust­ur­velli en þar voru ekki aðeins fluttar ræður heldur einnig flutt tón­list og ljóð. Tabit Lakhda og Rima Nasser spil­uðu á oud, vin­sælasta hljóð­færið í Palest­ínu sem er einn for­vera nútíma gít­ars, og sungu Mawtini sem merkir Heima­landið mitt og er óop­in­bert þjóð­lag Palest­ínu. Elísabet Jök­uls­dóttir flutti tvö ljóð en annað barst henni frá palest­ínskri stúlku aðeins klukku­stund fyrir fund­inn og skil­aði stúlkan hlýrri kveðju til fund­ar­gesta. Páll Óskar Hjálmtýs­son sló botn­inn í sam­kom­una um klukkan þrjú og  söng lögin International og Allt fyrir ást­ina þar sem er að finna setn­ing­una „Út með hat­rið, inn með ást­ina.“

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er vont að geta ekki skrúfað fyrir peninga og vopn frá USA, þaðan kemur jú öll geta morðingjanna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár