Sjálfsvígi fylgir eitruð sorg

Egill Heiðar Anton Pálsson á rætur að rekja til Spánar, þar sem móðir hans fædd­ist inn í miðja borg­ara­styrj­öld. Tólf ára gam­all kynnt­ist hann sorg­inni þegar bróðir hans svipti sig lífi. Áður en ein­hver gat sagt honum það vissi Egill hvað hefði gerst og hvernig. Fyrir vikið glímdi hann við sjálfs­á­sak­anir og sekt­ar­kennd. Egill hefur dökkt yfir­bragð móður sinnar og lengi var dökkt yfir, en honum tókst að rata rétta leið og á að baki far­sælan feril sem leik­stjóri. Nú stýrir hann Borg­ar­leik­hús­inu.

Sjálfsvígi fylgir eitruð sorg

Eftir 25 ára búsetu erlendis var Egill Heiðar Anton Pálsson ráð­inn borg­ar­leik­hús­stjóri. Hann var ekk­ert á leið­inni heim þegar örlögin tóku í taumana, svipt­ingar urðu í einka­líf­inu og Ísland kall­aði. „Leiðin að heiman er leiðin heim,“ segir hann. 

Hann, sem hefur gert það að ævi­starfi sínu að segja sögur, á sjálfur merka sögu að baki. Svip­myndir úr lífi hans hafa birst í sýn­ingum sem hann hefur sett upp. Þar á meðal atvik sem situr alltaf í honum, þegar móðir hans kastaði sér ofan á kist­una þegar bróðir hans var lagður til grafar. Þannig hefur leik­listin orðið eins konar þerapía, tæki til úrvinnslu og markað leið­ina fram á við. 

Með því að sökkva sér ofan í sögur ann­arra öðl­ast hann betri skiln­ing á mann­legu eðli og sjálfum sér, sorgum og sigrum. 

Fæddist inn í borgarastyrjöldina

Sumarið 1936 geis­aði borg­ara­styrj­öld á Spáni þegar lítil stúlka kom í heim­inn á Las Palmas á …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár