Mikil ástríða í kirkjulegri tónlist

„Allt snýst þetta um að búa til sviðs­mynd með tón­unum í kringum orðin,“ segir Sigurður Sæv­ars­son, tón­skáld og skóla­stjóri Nýja tón­list­ar­skól­ans, sem er stað­ar­tón­skáld í Skál­holti.

Mikil ástríða í kirkjulegri tónlist

Sigurður Sæv­ars­son, tón­skáld og skóla­stjóri Nýja tón­list­ar­skól­ans, er stað­ar­tón­skáld í Skál­holti, en þar var nú í lok júní frum­flutt nýtt verk eftir hann. Sigurður hefur samið tón­list í marg­vís­legu formi en einkum kirkju­lega, sem heillar hann ekki síst vegna text­ans sem hann segir vera sér mik­inn inn­blástur, tala inn í nútím­ann og kveikja oft­ast tón­list­ina. Verk Sigurðar hafa komið út á diskum, einn þeirra var til­nefndur til Íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna og diskur með verkum hans, og fleiri Íslend­inga, var gef­inn út af virtri útgáfu og sat í öðru sæti á breska met­sölu­list­anum og var plata vik­unnar þar. Sigurður er með til­búna óperu um Ríkarð þriðja og á þá ósk að hún kom­ist á fjal­irnar fyrr en seinna. Hann vonar að frum­varp um Þjóð­ar­óp­eru verði að veru­leika og að sam­fella verði í óperu­flutn­ingi í náinni fram­tíð. Hann líkir óper­unni við fót­boltalið og segir að lið sem fái ein­ungis að spila einu sinni …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár