Sólveig Anna gagnrýnir Valkyrjurnar: „Skipanirnar koma frá Bandaríkjunum“

Formaður Eflingar segir Ísland vera lepp Banda­ríkj­anna í utan­rík­is­málum og að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar sýni und­ir­gefni og hlýðni við að „hafa eftir þvæl­una“ um ógn­ina sem stafar af Íran.

Sólveig Anna gagnrýnir Valkyrjurnar: „Skipanirnar koma frá Bandaríkjunum“
Kristrún Frosta­dóttir, Sólveig Anna Jóns­dóttir og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Formaður Eflingar gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina fyrir utan­rík­is­stefn­una.

Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, segir Ísland vera lepp­ríki Banda­ríkj­anna í utan­rík­is­málum. Það eina sem skipti rík­is­stjórn Íslands máli sé að sýna und­ir­gefni og hlýðni.

Í færslu á Facebook í gær vísar Sólveig Anna í frétta­flutn­ing síð­ustu daga þar sem leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar tjáðu sig um sprengju­árásir Banda­ríkj­anna á Íran og árásir Ísraels og Íran hvort á annað. „Klerk­arnir með kjarna­vopn ógn við heims­frið­inn“ er fyr­ir­sögn á við­tali Mbl.is við Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um málið og „Kjarna­vopn­vædd klerka­stjórn sé ógn við Norð­ur­lönd“ fyr­ir­sögn á við­tali Vísis við Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra.

„Nú er búið að mata póli­tíska leið­toga Íslands á röfl­inu sem að þær eiga svo að mata okkur almenn­ing á“

„Það er  satt best að segja alveg hræði­legt að aftur sé okkur smalað á þennan ógæfu­stað,“ skrifar Sólveiga Anna. „Nú er búið að mata póli­tíska leið­toga Íslands á röfl­inu sem að þær eiga svo að mata okkur almenn­ing á. Líkt og áður skiptir engu máli hver stjórnar land­inu – skip­an­irnar koma frá Banda­ríkj­unum og eina hlut­verk ráð­herrana er að hafa eftir þvæl­una í þeirri von að við séum svo fáfróð og heimsk að við étum myglað orða­sal­atið án þess að kvarta.“

Hagsmunir venjulegra Íslendinga sé friður

Sólveig Anna segir stað­reynd­irnar skipta engu máli í þessu sam­hengi, hvað þá virð­ing fyrir alþjóða­lögum og sátt­málum. „Það eina sem skiptir máli er að sýna und­ir­gefni og hlýðni,“ skrifar hún. „Að útgjöld Írans til hern­að­ar­mála séu sam­bæri­leg við útgjöld Úrúgvæ skiptir engu máli, „Klerka­stjórnin“ er samt sú alhættu­leg­asta og versta af öllum. Að í Íran búi meira en 90 millj­ónir af fólki, sem á ekki skilið að þurfa að lifa í ótta við að deyja vegna þess að Ísrael er stjórnað af stór­hættu­legum stríðs­glæpa­mönnum skiptir engu máli. Að Íran sé ekki að fram­leiða kjarn­orku­vopn, að allt alþjóða­sam­fé­lagið viti það, að Banda­ríkin hafi þangað til fyrir skemmstu sagt að engar sann­anir væru til staðar fyrir því að Íran ætl­aði að fram­leiða kjarn­orku­vopn skiptir engu máli.“

„Ísland er ávallt vilj­ugt til að standa með Banda­ríkj­unum, sama hvaða sturl­aða atburða­rás er í gangi“

Hún segir stríð ekki aðeins munu leiða hörm­ungar yfir sak­laust fólk heldur valda efna­hags­legum skaða fyrir fólk alls staðar að. „Ekkert skiptir máli annað en að sanna með skýrum hætti að Ísland er ávallt vilj­ugt til að standa með Banda­ríkj­unum, sama hvaða sturl­aða atburða­rás er í gangi, sama þó að sak­laust fólk deyi, sama þó að hags­munir venju­legra Íslend­inga séu aug­ljós­lega fyrst og fremst þeir að vinna að friði á alþjóða­vett­vangi,“ skrifar hún. „Það er mikil skömm fyrir okkur að heims­byggðin viti að við erum í utan­rík­is­málum lítið annað en lepp­ríki Banda­ríkj­anna.“

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Undirlægjuháttur Kristrúnar og Þorgerðar Katrínar við Trump er til skammar. Undirlægjuháttur Þorgerðar Katrínar kemr ekki á óvart, hún studdi innrás Davíðs Oddssonar í Írak 2003 þegar hann fór á bak við þing og þjóð.
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Það er nú samt þannig að haustið 2021 vöruðu BNA eindregið við því að Putin muni ráðast á Ukrainu. Evrópumenn vildu ekki hlusta. Og svo kom febrúar 2022.
    Iran hefur staðið bak við þó nokkrar árásir í Evrópu, m.a. borga þeir sænskum glæpamönnum til að skjóta á sendiráð Israela. Ekki góð tilhugsun að vita af kjarnorkusprengjum í þeirra höndum.
    ESB hefur skýra afstöðu: Iranar mega ekki koma sér upp kjarnorkuvopnum en til að ná því markmiði þarf að fara samningaleið og eftir alþjóðalögum.
    Hvort þessi stefna gengur upp og er raunsæ er svo annað mál.
    0
    • Ásgeir Överby skrifaði
      Málið snýst fyrst og fremst um hvort USA eigi að vera alheimslögga eða ekki. Það er ekki góð tilhugsun heldur að kjarnorkuvopn séu í höndum ráðamanna Ísraels.
      0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Dapurlegt að einhver skuli yfirhöfuð vilja eiga kjarnorkuvopn.
    0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Held að BNA og Ísrael ættu að byrja á að eyðileggja eigin sprengjur.

    BNA þeir einu sem hafa notað slík vopn á fólk.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár