Sólveig Anna gagnrýnir Valkyrjurnar: „Skipanirnar koma frá Bandaríkjunum“

Formaður Eflingar segir Ísland vera lepp Banda­ríkjanna í utan­ríkismálum og að ráðherrar ríkis­stjórnarinnar sýni undir­gefni og hlýðni við að „hafa eftir þvæluna“ um ógnina sem stafar af Íran.

Kristrún Frostadóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Kristrún Frosta­dóttir, Sólveig Anna Jóns­dóttir og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Formaður Eflingar gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina fyrir utan­rík­is­stefn­una.

Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, segir Ísland vera leppríki Banda­ríkjanna í utan­ríkismálum. Það eina sem skipti ríkis­stjórn Íslands máli sé að sýna undir­gefni og hlýðni.

Í færslu á Facebook í gær vísar Sólveig Anna í frétta­flutning síðustu daga þar sem leiðtogar ríkis­stjórnarinnar tjáðu sig um sprengju­árásir Banda­ríkjanna á Íran og árásir Ísraels og Íran hvort á annað. „Klerkarnir með kjarna­vopn ógn við heims­friðinn“ er fyrirsögn á viðtali Mbl.is við Kristrúnu Frosta­dóttur forsætis­ráðherra um málið og „Kjarnavopn­vædd klerka­stjórn sé ógn við Norður­lönd“ fyrirsögn á viðtali Vísis við Þorgerði Katrínu Gunnars­dóttur utan­ríkis­ráðherra.

„Nú er búið að mata pólitíska leiðtoga Íslands á röflinu sem að þær eiga svo að mata okkur almenning á“

„Það er  satt best að segja alveg hræðilegt að aftur sé okkur smalað á þennan ógæfustað,“ skrifar Sólveiga Anna. „Nú er búið að mata pólitíska leiðtoga Íslands á röflinu sem að þær eiga svo að mata okkur almenning á. Líkt og áður skiptir engu máli hver stjórnar landinu – skipanirnar koma frá Banda­ríkjunum og eina hlutverk ráðherrana er að hafa eftir þvæluna í þeirri von að við séum svo fáfróð og heimsk að við étum myglað orða­salatið án þess að kvarta.“

Hagsmunir venjulegra Íslendinga sé friður

Sólveig Anna segir staðreyndirnar skipta engu máli í þessu samhengi, hvað þá virðing fyrir alþjóða­lögum og sáttmálum. „Það eina sem skiptir máli er að sýna undir­gefni og hlýðni,“ skrifar hún. „Að útgjöld Írans til hernaðar­mála séu sambærileg við útgjöld Úrúgvæ skiptir engu máli, „Klerka­stjórnin“ er samt sú alhættulegasta og versta af öllum. Að í Íran búi meira en 90 milljónir af fólki, sem á ekki skilið að þurfa að lifa í ótta við að deyja vegna þess að Ísrael er stjórnað af stór­hættulegum stríðs­glæpamönnum skiptir engu máli. Að Íran sé ekki að framleiða kjarnorku­vopn, að allt alþjóða­samfélagið viti það, að Banda­ríkin hafi þangað til fyrir skemmstu sagt að engar sannanir væru til staðar fyrir því að Íran ætlaði að framleiða kjarnorku­vopn skiptir engu máli.“

„Ísland er ávallt viljugt til að standa með Banda­ríkjunum, sama hvaða sturlaða atburðarás er í gangi“

Hún segir stríð ekki aðeins munu leiða hörmungar yfir saklaust fólk heldur valda efnahags­legum skaða fyrir fólk alls staðar að. „Ekkert skiptir máli annað en að sanna með skýrum hætti að Ísland er ávallt viljugt til að standa með Banda­ríkjunum, sama hvaða sturlaða atburðarás er í gangi, sama þó að saklaust fólk deyi, sama þó að hagsmunir venjulegra Íslendinga séu augljós­lega fyrst og fremst þeir að vinna að friði á alþjóða­vettvangi,“ skrifar hún. „Það er mikil skömm fyrir okkur að heims­byggðin viti að við erum í utan­ríkismálum lítið annað en leppríki Banda­ríkjanna.“

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Undirlægjuháttur Kristrúnar og Þorgerðar Katrínar við Trump er til skammar. Undirlægjuháttur Þorgerðar Katrínar kemr ekki á óvart, hún studdi innrás Davíðs Oddssonar í Írak 2003 þegar hann fór á bak við þing og þjóð.
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Það er nú samt þannig að haustið 2021 vöruðu BNA eindregið við því að Putin muni ráðast á Ukrainu. Evrópumenn vildu ekki hlusta. Og svo kom febrúar 2022.
    Iran hefur staðið bak við þó nokkrar árásir í Evrópu, m.a. borga þeir sænskum glæpamönnum til að skjóta á sendiráð Israela. Ekki góð tilhugsun að vita af kjarnorkusprengjum í þeirra höndum.
    ESB hefur skýra afstöðu: Iranar mega ekki koma sér upp kjarnorkuvopnum en til að ná því markmiði þarf að fara samningaleið og eftir alþjóðalögum.
    Hvort þessi stefna gengur upp og er raunsæ er svo annað mál.
    0
    • Ásgeir Överby skrifaði
      Málið snýst fyrst og fremst um hvort USA eigi að vera alheimslögga eða ekki. Það er ekki góð tilhugsun heldur að kjarnorkuvopn séu í höndum ráðamanna Ísraels.
      0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Dapurlegt að einhver skuli yfirhöfuð vilja eiga kjarnorkuvopn.
    0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Held að BNA og Ísrael ættu að byrja á að eyðileggja eigin sprengjur.

    BNA þeir einu sem hafa notað slík vopn á fólk.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár