Borgin fetar í fótspor ríkisstjórnarinnar – biður um sparnaðarráð

Reykja­vík­ur­borg ætlar að óska eftir hug­myndum frá starfs­fólki og íbúum um hvernig mætti fara betur með fé borg­ar­innar. Hægt verður að senda inn hug­myndir í gegnum netið út apr­íl­mánuð. „Fullum trún­aði heitið,“ segir í til­kynn­ingu.

Borgin fetar í fótspor ríkisstjórnarinnar – biður um sparnaðarráð
Leita hug­mynda Meiri­hlut­inn í borg­inni vill til­lögur íbúa og starfs­fólks um hvernig megi nýta pen­inga betur í starf­semi Reykja­víkur. Mynd: Golli

Borg­ar­stjórn sam­þykkti í gær til­lögu meiri­hlut­ans um að biðja starfs­fólk og íbúa borg­ar­innar um til­lögur, ábend­ingar, sjón­ar­mið og álit á því hvernig betur megi nýta tíma og fjár­magn borg­ar­innar. 

Þetta er sams­konar leið og rík­is­stjórnin fór í byrjun árs, þegar mörg þús­und hug­myndir söfn­uð­ust um hvernig spara mætti í rekstri rík­is­ins. Sér­stakur hópur var skip­aður til að fara yfir til­lög­urnar og voru nið­ur­stöður hans kynntar í byrjun mars. 

Borgin ætlar að skipa eigin hóp til að fara yfir til­lög­urnar, sem íbúar og starfs­menn geta sent inn í gegnum sam­ráðs­gátt Reykja­víkur. Tekið er fram í til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar að eng­inn kostn­aður annar en tími starfs­manna borg­ar­innar falli til. 

Tillagan var sam­þykkt á borg­ar­stjórn­ar­fundi í gær og greiddu full­trúar meiri­hluta­flokk­anna – Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Sós­í­alista, Flokks fólks­ins og Pírata – með til­lög­unni auk full­trúa Fram­sókn­ar­flokks og Við­reisnar. Sjálf­stæð­is­menn sátu hjá. 

„Engin tak­mörk eru sett á lengd álita en mik­il­vægt …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Hér eru nokkur ráð sem hafa alltaf virkað vel fyrir sjálfstæðismenn: 1. Lækka laun allra sem minnst mega við því, sérstaklega þeirra sem vinna erfiðisvinnu af einhverju tagi svo sem þrif. 2. Fækka starfsfólki í öllu sem heitir umönnun, þrif eða öðru því þar sem lægstu launin eru. 3. Fækka grunnskólakennurum og leikskólakennurum svo álag aukist verulega og þá hætta fleiri vegna álags. 4. Setja á stefnuskrá að kennarar og ýmsir kostnaðarsamir og "gráðugir" launahópar séu í raun láglaunastörf. 5. Fjársvelta alla þjónustu við borgarbúa svo starfseminn dragist saman og allir verði óánægðir með þjónustuna. Einkavæða svo því einkavædd þjónusta lítur alltaf betur út í samanburði við fjársvelta þjónustu jafnvel þó að að á endanum verði allt dýrara þegar einkareksturinn þjappast á fáar hendur en allir verða búnir að gleyma hvernig hlutirnir voru áður.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár