SÍS var andvíg tillögu sem Heiða Björg sagðist hlynnt en mætti ekki til þess að greiða atkvæði

Stjórn SÍS og samninga­nefnd var andvíg fram­lagningu innan­hústillögu ríkis­sátta­semjara í kennara­deilu sem var felld af sambandinu í gær. Nýr borgar­stjóri segist hafa verið hlynnt henni, en mætti ekki til þess að greiða atkvæði með tillög­unni.

Kennarar mættu og mótmæltu á pöllum ráðhússins þar sem Heiða Björg Hilmisdóttir upplýsti kennara um að hún hefði verið hlynnt tillögunni.
Kennarar mættu og mót­mæltu á pöllum ráð­húss­ins þar sem Heiða Björg Hilm­is­dóttir upp­lýsti kenn­ara um að hún hefði verið hlynnt til­lög­unni. Mynd: Golli

Samband íslenskra sveitar­félaga (SÍS) segir innan­hústillögu sem var lögð fram af ríkis­sátta­semjara hafi ekki verið lögð þar fram „með samþykki stjórnar SÍS eða samninga­nefndar“.

Segist stjórn sambandsins vilja koma þessu skýrt á framfæri í tilkynningu sem var birt á vefsvæði sambandsins.

Forseti SÍS og nýr borgar­stjóri, Heiða Björg Hilmis­dóttir, sagðist hafa verið hlynnt tillög­unni sem var lögð fram og sagði við blaðamann Heimildarinnar skömmu fyrir auka­aðalfund borgar­stjórnar í gær:

„Ég bað vara­formann um að hringja í mig ef það yrði atkvæða­greiðsla, en það lá alltaf fyrir að ég hefði samþykkt þennan samning.“

Þegar hún var spurð hvers vegna tillög­unni hefði verið hafnað, svaraði Heiða:

„Ég er bara með eitt atkvæði, hinir voru á annarri skoðun.“ Þá sagði hún að það hefði ekki breytt niður­stöðunni ef hún hefði mætt á fundinn sem hún var fjar­verandi á. Úr varð að SÍS fékk frest til hádegis daginn eftir, og var tillagan þá felld.

Aðrir í stjórn SÍS eru eftir­farandi: Einar Þorsteinsson, Reykjavík, Hildur Björns­dóttir, Reykjavík, Rósa Guðbjarts­dóttir, Hafnar­firði , Einar Brandsson, Akranesi, Nanný Arna Guðmunds­dóttir, Ísafirði, Freyr Antonsson, Dalvíkur­byggð, Jón Björn Hákonarson, Fjarða­byggð, Margrét Ólöf A. Sanders, Reykja­nesbæ og Walter Fannar Kristjánsson, Flóa­hreppi.

Kennara­sambandið bregst harkalega við yfir­lýsingu SÍS á heimasíðu sinni og skorar á fulltrúa í stjórn Sambands íslenskra sveitar­félaga að greina frá sinni afstöðu til innan­hússtillögu ríkis­sátta­semjara.

Mbl.is greindi frá því í gærkvöldi að Heiða Björg hefði spilað einleik í málinu og komið flatt upp á aðra stjórnar­menn SÍS sem skýri óeininguna sem finna má í yfir­lýsingu SÍS. Ástráður Haraldsson ríkis­sátta­semjari sagði í fréttum RÚV að hann hefði lagt fram innan­húss­tillöguna með samþykki deilandi fylkinga, sem vekur furðu í ljósi yfir­lýsingar SÍS.

Kennara­sambandið telur að stjórn SÍS fari með ósannindi þegar kemur að afstöðu til fram­lagningar tillög­unnar og fullyrðir Kennara­sambandið að hið rétta sé að formaður samninga­nefndar sveitar­félaga hafi verið sammála formanni viðræðu­nefndar KÍ og ríkis­sátta­semjara, á fundi sem haldinn var í húsnæði ríkis­sátta­semjara fimmtudaginn 20. febrúar, um að rétt væri að leggja fyrr­nefnda innan­hússtillögu fyrir samninga­nefndir samnings­aðila og að svar við henni yrði að berast samdægurs. 

Ástráði Haralds­syni ríkis­sátta­semjara, að hann hafi lagt innan­hússtillögu sína fram með samþykki deilandi fylkinga.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár