Nýr meirihluti kynntur í dag

Nýr meiri­hluti í Reykja­vík hyggst kynna sam­starfs­samn­ing sinn á fjórða tím­anum í dag. Kosning borg­ar­stjóra er á dag­skrá auka­fundar borg­ar­stjórnar síð­degis.

Nýr meirihluti kynntur í dag
Meiri­hluta­við­ræður fyrr í vik­unni. Mynd: Golli

Oddvitar Sam­fylk­ingar, Pírata, Sós­í­alista, Flokks fólks­ins og Vinstri grænna boða til blaða­manna­fundar í Ráð­hús­inu í dag, klukkan 15:50, þar sem sam­starfs­yf­ir­lýs­ing flokk­anna verður kynnt. Þar er gert ráð fyrir að flokk­arnir munu kynna nýtt sam­starf eftir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sleit sam­starfi við Sam­fylk­ingu, Pírata og Viðreisn fyrir sléttum tveimur vikum.

Þá stendur til að fram fari auka­að­al­fundur borg­ar­stjórnar klukkan 16:40. Nokkur spenna er í kringum fund­inn, en for­maður Kenn­ara­sam­bands­ins sagði í sam­tali við Heim­ild­ina að hann bygg­ist við því að stéttin muni fjöl­menna á borg­ar­stjórn­ar­fund­inn vegna kjara­deilna sem sveit­ar­fé­lög eiga í við kenn­ara­sam­bandið. Það slitn­aði upp úr þeirri deilu seint í gær­kvöldi og kenn­arar hafa gengið út úr skólum í dag vegna þessa.

For­mað­ur­inn sagði hins­vegar að ekk­ert væri form­lega skipu­lagt í þessum efnum af hálfu kenn­ara, því yrði bara að bíða og sjá. Töluverð óánægja er í röðum kenn­ara, sér­stak­lega í ljósi þess að for­maður Sambands Íslenskra sveit­ar­fé­laga, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár