Sannleikurinn um manninn í hvalnum

Það kann að hafa virst sem að hvalur hafi ætlað að gæða sér á manna­kjöti úti fyrir ströndum Chile á dög­unum er kajakræð­ari hafn­aði í kjafti hans. Það er þó afar ólík­legt, segir Edda Elísabet Magn­ús­dóttir, okkar mesti sér­fræð­ingur í atferli hvala. En hefði hnúfu­bak­ur­inn getað gleypt mann­inn?

Sannleikurinn um manninn í hvalnum
Í hval­s­kjafti Adrián Simancas hélt að hann væri að deyja er hann hafn­aði í kjafti hvals úti fyrir ströndum Chile. Atvikið náð­ist á mynd­band.

Hann hélt að dagar sínir væru taldir. Að hann myndi aldrei líta dags­ljós aftur. Og enda í maga hvals, rétt eins og Jónas forðum. „Ég hélt að hann hefði étið mig, að hann hefði gleypt mig,“ sagði kajakræð­ar­inn Adrián Simancas sem hnúfu­bakur skófl­aði upp í sig úti fyrir ströndum Chile um síð­ustu helgi. Hann var aðeins í kjafti hvals­ins í örfáar sek­úndur áður en honum var hrein­lega spýtt út aftur. Faðir hans náði atvik­inu á mynd­band, sem þykir ein­stakt, en atvikið sem slíkt er það líka. „Engin þekkt dæmi eru um að hvalir éti menn,“ segir Edda Elísabet Magn­ús­dóttir, hvala­sér­fræð­ingur og lektor í líf­fræði við Háskóla Íslands. Tann­hvalir gætu mögu­lega étið mann­eskju. En þá þyrftu þeir fyrst að búta hana niður í hæfi­lega bita. Þetta hljómar ógeð­fellt, við­ur­kennir Edda, en þarft að taka fram til að svara lyk­il­spurn­ingu blaða­manns: Éta hvalir menn?

„Stórir skíð­is­hvalir eins og hnúfu­bak­ur­inn, í hvers kjafti bless­aði kajakræð­ar­inn lenti inn í, geta ekki étið menn“
Edda Elísabet Magn­ús­dóttir,
hvala­sér­fræð­ingur

„Stórir skíð­is­hvalir eins og hnúfu­bak­ur­inn, í hvers kjafti bless­aði kajakræð­ar­inn lenti inn í, geta það ekki,“ svarar hún. „Þeir geta í fyrsta lagi ekki bútað mann­eskju niður, til þess vantar þeim tenn­urnar, en svo gætu þeir ekki kyngt mann­eskju í heilu lagi heldur. Þrátt fyrir gríð­ar­lega stærð þá eru þeir með nokkuð lítið kok og geta þar af leið­andi bara étið ákveðna stærð af dýrum. Enda er þeirra aðal­fæða agn­arsmá svif­dýr og litlir torfu­fiskar.“

Þessar risa­vöxnu skepnur, sem sumar eru þær stærstu á jörð­inni, nær­ast nefni­lega á því smáa. Og mann­eskja, með eða án kajaks, er af þeim sökum ekki á mat­seðl­inum. 

En eru þeir þá að éta alveg gríð­ar­legt magn af litlum dýrum?

„Þetta er einmitt oft í umræð­unni hér á Íslandi þegar kemur að hval­veiðum,“ svarar Edda Elísabet. En í því sam­hengi telur hún nauð­syn­legt að stíga til baka og skoða þróun hvala. 

Hringstraumurinn gjöfuli

Fyrir um 35 millj­ónum ára losn­aði Suð­ur­skauts­landið frá meg­in­land­inu og allt breytt­ist í umhverfi hafs­ins. Öflugir haf­straumar mynd­uð­ust sem enn hringa sig um suð­ur­skautið. „Við þær aðstæður varð mik­ill þró­un­ar­fræði­leg inn­spýt­ing hvað varðar teg­unda­myndun þör­unga og í kjöl­farið varð meira af svif­dýrum og lífmassi þess­ara líf­vera varð miklu meiri.“

Hvala­sér­fræð­ingurEdda Elísabet Magn­ús­dóttir.

En það voru ekki mörg rán­dýr sem gátu nýtt sér þessa fæðu og það virð­ist hafa ýtt undir þróun á síun hjá ákveðnum hvölum. „Þeir þróa með sér síun­ar­búnað, skíðin,“ útskýrir Edda. Þannig fóru þeir að geta nærst á agn­ar­smárri fæðu í haf­inu og fór sam­hliða því að vegna vel. Og vegnar nokkuð vel enn þann dag í dag. 

Það er vegna þess að á kald­ari haf­svæðum og þar sem kaldir og heit­ari haf­straumar mæt­ast, rétt eins og við Ísland, verða til sér­stakar aðstæður fyrir fram­leiðslu á miklum lífmassa, agn­arsmáum líf­verum á borð við svif­þör­unga og svif­krabba sem og á smærri torfu­fiski eins og loðnu og síld.

„En núna hafa orðið breyt­ingar í haf­inu og við farin að sjá mjög miklar breyt­ingar á útbreiðslu þess­ara líf­vera,“ segir Edda. Það setji okkur mann­fólk í vand­ræði, því við veiðum þessar teg­undir og nýtum, en líka hval­ina sem finna ekki fæðu sína á sömu slóðum og áður. „Já, hvalir eru stórir og éta mikið,“ heldur hún áfram, „en þeir eru aðlag­aðir að þess­ari ein­stöku auð­lind sem er sér­stak­lega mikið af norð­ar­lega og sunn­ar­lega á hnett­inum. Þess vegna hefur vist­kerfi jarðar getað haldið uppi þessum gríð­ar­stórum skíð­is­hvölum.“

Maðurinn í hvalnum

Hafið við Ísland er að hlýna og það er að súrna. Þetta hefur áhrif á smærri og næm­ari líf­verur, sér­stak­lega á þroska lirfa hrygg­leys­ingja sem og fiska. Lirfur þurfa ákveðið hita­stig til að þroskast. Þær eru hita­næmar, líkt og Edda orðar það. Og það eru einmitt þessar næmu líf­verur sem hvalir treysta á sér til lífs. Við þessar breyttu umhverf­is­að­stæður getur orðið hrun í ákveðnum kyn­slóðum fisk­teg­unda en einnig geta þeir fært sig annað til að hrygna. „Við erum að sjá meiri breyt­ingu í útbreiðslu fiska,“ segir Edda, „og við erum til dæmis að sjá hval inni í Hafn­ar­firði á vet­urna, annan vet­ur­inn ef ekki þann þriðja í röð. Þar sjáum við dæmi um hval sem virð­ist naskur á að leita uppi vís­bend­ingar um fæðu. Þegar fæðan þeirra er ekki til staðar þá fara þeir annað að leita hennar.“ 

Umhverfisbreytingar stóri áhrifavaldurinn

Edda segir klárt að meg­in­or­sök þess að lítið finnst af loðnu við Ísland um þessar mundir séu þessar umhverf­is­breyt­ingar í haf­inu þótt aðrir þættir spili líka inn í, s.s. afrán ann­arra teg­unda. Loðnan er kul­sæk­inn fiskur og útbreiðsla á hrygn­ing­ar­svæðum hennar hefur breyst síð­ustu ára­tugi. „Núna erum við í miklum vand­ræðum með að finna hana. En við vitum ekki hvort að það sé vegna þess að hún hefur fært sig á nýjar slóðir eða hvort það sé brestur í stofn­inum.“ 

Það gæti vissu­lega haft áhrif á efna­hag íslensku þjóð­ar­innar, líkt og mikið er nú rætt um í fjöl­miðlum, en þó ekki síst á allt vist­kerfi norð­ur­slóða enda loðnan mjög mik­il­væg í því sam­bandi. 

Nokkuð stór meðafli

En færum okkur aftur suður til Chile, á þær slóðir sem feðgarnir voru að róa á kajök­unum sínum - í miðri fæðu­lendu risa­vax­inna hnúfu­baka. 

„Þótt kajakræð­ar­inn hafi aldrei verið í hættu á að vera bút­aður niður hefði hann getað drukknað,“ segir Edda. „Það kann að líta út fyrir að hval­ur­inn hafi ætlað sér að gleypa mann­inn en miðað við líf­fræði þeirra og hegðun þá tel ég það afar ólík­legt. Maðurinn er þarna á kajak þar sem hval­ur­inn er að éta. Verstu slysin sem ræð­arar verða fyrir í tengslum við hvali eiga sér stað þegar farið er inn á fæðu­slóðir. Þar er hval­ur­inn mjög ein­beittur að veiða og éta.“

StökkvandiHnúfu­bak­ur­inn er kubbs­lega vax­inn, sver­astur um miðj­una en mjókkar nokkuð jafnt til beggja enda. Hann getur náð allt að 17 metra lengd og eru kýr heldur stærri en tarfar. Hnúfu­bak­ur­inn er með stóran haus sem nemur allt að þriðj­ungi af heild­ar­lengd dýrs­ins.

 Þegar þeir eru í mik­illi fæðu og hafa safnað sér góðri orku þá eru þeir lík­legri til þess að stökkva. Það er áhrifa­mikil sjón en skapar að sama skapi hættu­legar aðstæður fyrir ræð­ara. Þeir geta velt bátum, lent ofan á þeim og þar fram eftir göt­unum.

„Í þessu ótrú­lega til­felli lenti maður uppi í kjaft­inum á hvalnum,“ segir Edda. „Við höfum séð það þegar hnúfu­bakar eru að éta upp við yfir­borðið að sjó­fuglar slæð­ast með en þeir eru fljótir að hleypa fugl­inum út. Stundum svo­lítið vönk­uðum. En í þessu til­felli var þetta nokkuð stór með­afli hjá þessum hval, myndi ég segja.“

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SE
    Steinunn Eldflaug skrifaði
    hér er AMA á reddit þar sem maður svarar spurningum. Hann var gleyptur af hval á humarveiðum eitt sinn en lifði það af: https://www.reddit.com/r/IAmA/comments/nydiqd/im_a_lobster_diver_who_recently_survived_being/?rdt=47578
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár