Takk, Ásgeir

Minning um Ásgeir H. Ing­ólfs­son, bóka- og menn­ing­ar­blaða­mann Heim­ild­ar­innar.

Takk, Ásgeir

I

Bara núna 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn voru í bóka­blaði Heim­ild­ar­innar nokkrir rit­dómar eftir Ásgeir. Blaðið hafði verið stækkað tveimur dögum fyrir prent og skyndi­lega bráðlá á að vinna meira efni. Sú okkar sem þá rit­stýrði bóka­blað­inu (Auður) hringdi því í Ásgeir og spurði hvort hann gæti lesið tvær bækur og skrifað um þær á aðeins tveimur dögum. Það var auð­fengið; hann gekk í málið án þess að kippa sér upp við það og dóm­arnir skil­uðu sér – mál­inu var reddað og langt í frá í fyrsta sinn sem hann redd­aði málum. Að Ásgeir væri þá veikur af krabba­meini óraði mann ekki fyrir. 

Einhvern veg­inn gengum við að honum vísum; hann var okkur ómet­an­legur bak­hjarl þegar við rit­stýrðum bóka­blöðum Stund­ar­innar og Heim­ild­ar­innar. Alltaf til í að redda því sem redda þurfti þegar mikið lá við, eins áreynslu­laust og hann vann hratt og skil­virkt. Með evr­ópsk gler­augu á nef­inu og list­ræna nálgun á list­rænt efni. Sjálfur hafði hann séð um menn­ing­una á Stund­inni um tíma og gagn­rýnt bækur fyrir bæði Stundina og síðar Heim­ild­ina í sjö ár. En hann var eng­inn stjörnu­bruðl­ari. 

Nú fyrir jól bar svo við að hann gaf í fyrsta skipti bók fimm stjörnur á öllum þessum tíma. Það sætti slíkum tíð­indum að því var slegið upp í yfir­fyr­ir­sögn. Ásgeir Ing­ólfs­son gefur fimm stjörnur í fyrsta skipti í sjö ár! 

Já, Ásgeir var svo traustur að okkur fannst að hann hlyti alltaf að vera á sínum stað. Reiðu­bú­inn að grípa örvænt­ing­ar­fullan bóka- og menn­ing­ar­rit­stjóra þegar þurfti að redda því óger­lega, alltaf mildur og kátur, til í að hugsa í lausnum. 

Það gerði hann líka í lif­anda lífi. 

Nú í vor var önnur okkar (Auður) eitt­hvað rislág eftir opin­bera umræðu að ráfa í öngum sínum heim á leið upp Lauga­veg­inn seint um kvöld þegar hún rak augun í Ásgeir – sem aldrei þessu vant var á Íslandi en ekki í Tékk­landi. Líka að ráfa, eins og guð hefði sent hann. Augna­bliki síðar sat hún ásamt honum á Mónakó og hellti raunum sínum yfir hann sem brosti svo blítt en stóískt að hug­ar­angrið varð að engu. Allt í einu var bara hlegið yfir nokkrum bjórum – að líf­inu! 

Raunar stóð til að bjóða Ásgeiri á Mónakó þegar hann yrði hér heima um jólin og búið að plana það og hlakka til. 

Svo fór sem fór. 

Aðeins eru örfáir dagar síðan hin okkar, Alma, hafði sam­band við áður­nefnda og sagði henni að Ásgeir væri lífs­hættu­lega veikur. Þá hafði Auður ekki verið á Facebook síðan í nóv­em­ber og auk þess nýkomin heim að utan. En skila­boðin voru óraun­veru­leg. Hvernig gat þetta verið? Rétt tæpur mán­uður síðan hann ham­að­ist við að skrifa fyrir síð­asta bóka­blaðið fyrir jólin og svo … 

Og svo er Ásgeir dáinn. 

Auður hafði leitað að réttu orð­unum til að skrifa honum. Að kvöldi sendi hún honum nokkrar línur, þegar ljóst varð að stundum eru réttu orðin ekki til. Morg­un­inn eftir sá hún að hann hafði séð orðin, örfáum tímum síðar frétt­ist að hann væri dáinn þegar hin okkar, Alma, hringdi með grát­inn í kverk­unum. 

Hvorug okkar trúði þessu. 

Að Ásgeir, sem var meira lif­andi en flestir þegar talað var um hug­myndir, skáld­skap og menn­ing­ar­blaða­mennsku, væri far­inn. Við getum aldrei aftur hringt í hann til að heila­spinna eða sent línu með ábyrgð­ar­lausum pæl­ingum og fengið að heyra eitt­hvað svo nota­lega góð­lát­legt. 

Hann ástund­aði menn­ing­ar­blaða­mennsku af lífi og sál. 

Trúði á hana eins og hann trúði á skáld­skap­inn. Nógu trú­aður skáld­skapnum til að þora að skrifa beitt þegar honum fannst skáld­skapnum ekki vera sýnd næg virð­ing. Og alltaf ástríðu­fullur í spjalli um hvernig best væri að útfæra menn­ing­ar­efni, hvað þyrfti að vera til staðar. Eins áhuga­samur um pólsk ljóð­skáld og lista­menn frá Úkraínu í hernum eða ungskáld á Akureyri. 

II

Minn­ing­ar­grein um Ásgeir þarf að fá að leys­ast upp í fag­ur­fræði sakn­að­ar­ins. Við stígum inn á leik­svið í lít­illi sveita­borg í Tékk­landi eða í gamla leik­hús­inu á Akureyri og Alma setur á sig svartan kúlu­hatt þegar hún minn­ist sam­starfs­fé­laga okkar. Hún segir: 

Þú þorðir að segja til þín, eins og rit­höf­und­ur­inn Haukur Már Helgason orð­aði það í grein­inni sem þú sendir mér: Án þess hafa bófarnir yfir­hönd­ina. 

Haukur var að vísa í þessa grein þína: Glerborg blank­heit­anna.

Þessi pist­ill er svo skemmti­legur og fræð­andi og sannur og ein­lægur, eins og þú. Hann lýsir þér vel. Þú lýsir því vel hvernig þú varðst bara að skrifa, hvernig þú fluttir landa á milli til þess að geta lifað á því eða lifað við það.

  Heim­ur­inn er nefni­lega bara úr gleri ef þú hefur ekki efni á bestu lög­fræð­ing­unum – sagðir þú.

Þetta er svo flott setn­ing, Ásgeir. 

Þú kunnir að skrifa um lífið og ég held að þess vegna hafir þú verið svo góður í að skrifa um menn­ingu því þú skildir ofan í kjarna að menn­ingin er órjúf­an­legur hluti af líf­inu en ekki gler­dýr sem situr á hillu og eng­inn má snerta. 

Þú komst aldrei fram við menn­ing­una eins og þau sem sköp­uðu hana líkt og þau væru úr gleri. Þú vissir að menn­ingin átti betra skilið. Enga stjörnu­gjaf­ar­verð­bólgu. Bókin um dauð­ann fékk – manstu – tvær og hálfa stjörnu. Þér fannst of mikið af æðru­leysi gagn­vart dauð­anum í henni. Þér fannst það óbæri­legt. Þér fannst óbæri­legt að það væri talað í kringum dauð­ann og ekki farið í kvik­una á honum. 

III

Okkur, Ölmu og Auði, finnst óbæri­legt að þú sért far­inn. 

Við ávörpum þig, segjum þú – af því þú verður alltaf með okkur.

Þú sagðir að þér hefði orðið ljóst í Kjarna­skógi, skóg­inum sem afi þinn gróð­ur­setti, að þú þyrftir að skrifa. 

Þú sagðir að afi þinn hefði getað sagt þér að það taki tíma fyrir alvöru tré að vaxa. Að við lifum stundum ekki nógu lengi til þess að sjá hverju örfá fræ fá áorkað. Þessu lang­aði þig að trúa. Og þú sagðir: Stundum trúi ég því.

Það var einmitt á lang­leið­inni út í Kjarna­skóg sem þú ætl­aðir að tryggja orð­unum þínum, hug­myndum og skrifum fram­halds­líf. Og mögu­lega eitt slíkt fyrir þig líka, þar sem þú, sam­kvæmt þínum orðum, varst kom­inn með dauða­dóm. Dauða­dómur, orð­notkun eins og úr einu af upp­á­halds­ljóð­inu þínu, Þú mátt ekki sofa, eftir Arnulf Overland. Þessi setn­ing úr því á svo fal­lega við þig: 

Þú mátt ekki hír­ast í helgum steini

með hlut­lausri aumkun í þögn og leyni!

Þau hrópa, slitrin af manns­rödd minni:

Þú mátt ekki gleyma köllun þinni!

Takk, Ásgeir.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár