Pabbi biður að heilsa öllum á Grænlandi,“ sagði Donald Trump yngri, elsti sonur Donalds Trump, nýkjörins forseta Bandaríkjanna, þegar hann var nýlentur á Grænlandi í byrjun janúar. Þangað kom hann með flugvél sem merkt er Trump stórum stöfum. Hann sagði við fjölmiðlafólk sem safnast hafði saman í flugstöðinni að hann væri bara ferðamaður. Ekki stæði til að hann hitti stjórnmálafólk, hann ætlaði bara að skoða sig um.
Á blaðamannafundi suður í Flórída sama dag sagði Trump, sem rúmum hálfum mánuði síðar sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna, að Bandaríkin þyrftu á Grænlandi að halda til að tryggja efnahagslegt öryggi.
Trump hefur reglulega nefnt að vilja kaupa Grænland. Það gerði hann um miðbik forsetatíðar hans hinnar fyrri árið 2019. Nú er hann orðinn forseti að nýju, valdamesti maður í heimi og hefur að …
Athugasemdir