Bláa gullið við hraunjaðarinn: Dreifa áhættunni og sér um leið

Eigendur Bláa lóns­ins hafa grætt millj­arða á að selja ferða­mönnum aðgengi að lón­inu, sem er í raun affalls­vatn af virkjun í Svarts­engi. Eftir að eldsum­brot hófust í bak­garði lóns­ins, sem þó er varið gríð­ar­stórum varn­ar­görðum, hafa stjórn­endur leitað leiða til að dreifa áhættu og fjár­fest í ferða­þjón­ustu fjarri hættu á renn­andi hrauni. Tug­millj­arða hags­munir eru á áfram­hald­andi vel­gengni lóns­ins en nær allir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa fjár­fest í því.

Bláa gullið við hraunjaðarinn: Dreifa áhættunni og sér um leið

Verð­mætasta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins, Bláa lónið, vinnur nú mark­visst að því að fjár­festa í verk­efnum sem ekki eru í hættu af síend­ur­teknum eldsum­brotum á Reykja­nesi. Tug­millj­arða hags­munir eru af því að starf­semin haldi áfram og að fast­eignum sé forðað frá því að verða hrauni að bráð. Varn­ar­garðar sem verja orku­verið í Svarts­engi verja líka krúnu­djásn íslenskrar ferða­þjón­ustu. 

Líf­eyr­is­sjóðir og einka­fjár­festar, sem keyptu sig inn í fyr­ir­tækið rétt fyrir krítíska tíma, bæði kór­ónu­veiru­far­aldur og eldsum­brot, hafa fjár­fest fyrir millj­arða króna á síð­ustu árum, á meðan hlut­hafar til ára­tuga hafa selt sig út úr fyr­ir­tæk­inu. Af 21 starf­andi líf­eyr­is­sjóðum á Íslandi eru að minnsta kosti sautján sem hafa fjár­fest í Bláa lón­inu. 

Á síð­ustu miss­erum hefur Bláa lónið keypt hluti í ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum og lagt upp með stór­huga fram­kvæmdir á ferða­manna­stöðum á ósnortnu hálend­inu. 

Ástæðuna má ekki síst rekja til jarð­hrær­inga á Reykja­nesi.

„Vegna yfir­vof­andi eld­gosa­hættu var Bláa …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár