„Aldrei verið í boði að gefast upp“
Hjól­hýsa­byggðin við Sæv­ar­höfða þar sem nú standa átján hýsi Mynd: Golli

„Aldrei verið í boði að gefast upp“

Íbúum hjól­hýsa­byggð­ar­innar í Laug­ar­dalnum var sagt að þau þyrftu að flytja upp á Sæv­ar­höfða í 8 til 12 vikur og síðan yrði þeim fund­inn annar staður til að búa á. Síðan eru liðnar 78 vikur. Íbúarnir halda nú þar sín önnur jól og vita ekk­ert hvert fram­haldið verður. „Ég er nátt­úr­lega brjáluð,“ segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir, íbúi á svæð­inu og for­maður Samtaka hjóla­búa.

Þann 16. júní 2023 var þeim sem bjuggu í hjól­hýsum og hús­bílum sínum á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dal til­kynnt að þau þyrftu að flytja tíma­bundið upp á Sæv­ar­höfða, óhirta lóð við hlið 40 metra sílóa þar sem gamla sem­ent­stöðin var áður til húsa. Þar var komið upp raf­magnstenglum fyrir þau og borga þau 15 þús­und krónur á mán­uði fyrir aðgang að raf­magn­inu. Aðra þjón­ustu er þar ekki að fá. 

Engin rétt­indi fylgja þessu búsetu­formi – að búa í hjól­hýsi eða hús­bíl; þau geta ekki skráð lög­heim­ili sitt þar sem þau búa, eiga þar af leið­andi ekki rétt á heim­il­is­upp­bót, geta ekki fengið póst, hafa ekki aðgang að rusla­tunnum og þegar frystir er aðeins hægt að fá renn­andi vatn inni í gömlu steypu­stöð­inni. Þarna eru alla jafna 17 til 20 hýsi og íbú­arnir eru lang­þreyttir á að fá engin svör frá borg­inni um fram­tíð sína. 

„Ég er nátt­úr­lega brjáluð. Það …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Vir[ingar og skilningsleysi borgarstjóra er virkilega til skammar. Þeir vita að húsaleiguverð er langt fyrir ofan launagetu láglaunafólks. Þetta er þvílikur blettur á þjóðfélaginu. Það er ekki til húsnæði fyrir láglauna hópa og svo er þetta rugl með greiðslumatið. Fólk sem borgar leigu upp á kannski 350þúsund á mánuði ætti að fá að geta flutt inn í kaupleiguíbúðir ef þessir stónendur vildu horfast í augu við raunveruleikann. Hvar er skilning að finna, eða virðingu í stað fordóma.
    1
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Dagur sko, margar ljótar gloppur í hans verkahring, Einar verður kannski ekkert skárri.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í einbýlishúsi“
VettvangurHjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í ein­býl­is­húsi“

Bergþóra Páls­dóttir, Bebba, hefur unun af því að fá gesti til sín í hjól­hýsið og finnst þetta svo­lítið eins og að búa í ein­býl­is­húsi. Barna­börnin koma líka í heim­sókn en þau geta ekki farið út að leika sér í hjól­hýsa­byggð­inni í Sæv­ar­höfð­anum: „Þau skilja ekki af hverju við vorum rekin úr Laug­ar­dalnum og sett á þennan ógeðs­lega stað.“
Við erum ekkert „trailer trash“
VettvangurHjólhýsabyggðin

Við erum ekk­ert „trailer trash“

Lilja Karen varð ólétt eftir glasa­frjóvgun þegar hún bjó á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dalnum og á dög­unum fagn­aði dóttir hennar árs afmæli. Afmæl­is­veislan var haldin í hjól­hýsi litlu fjöl­skyld­unnar á Sæv­ar­höfða, þar sem þær mæðgur búa ásamt hinni mömm­unni, Frið­meyju Helgu. „Okkar til­finn­ing er að það hafi verið leitað að ljótasta staðnum fyrir okkur,“ segir Friðmey, og á þar við svæðið sem Reykja­vík­ur­borg fann fyrir hjól­hýsa­byggð­ina.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár