„Komin mjög vel á veg málefnalega séð“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Viðreisn og Flokk fólks­ins vera komnar vel á veg. Ekki sé aðeins horft til efna­hags­mála, þótt þau skipti miklu máli.

„Komin mjög vel á veg málefnalega séð“
Formaður Kristrún Frosta­dóttir segir umræðu um skipt­ingu ráðu­neyta enn á fyrstu metr­unum. Mynd: Golli

„Við höfum verið að þok­ast vel áfram. Við erum komin mjög vel á veg mál­efna­lega séð. Ég tek undir – eins og bæði Inga [Sæland, for­maður Flokks fólks­ins] og Þor­gerður Katrín [Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar] hafa sagt – að við erum bara komin mjög vel á veg og nálægt hver annarri hvað varðar að klára málin.“

Þetta segir Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, við Heim­ild­ina um stöðu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins.

Ekki aðeins horft til efnahagsmála

Nú eru að störfum vinnu­hópar, sem hver er skip­aður tveimur full­trúum úr hverjum flokki, sem móta til­lögur á helstu mál­efna­sviðum. 

„Við erum búin að vera með sex vinnu­hópa starf­andi í þessum mála­flokkum. Við erum að reyna að fá breiðu lín­urnar fram og knýja fram ákveðnar nið­ur­stöður í þyngri málum – eins og efna­hags­málum og stórum mála­flokkum eins og heil­brigðis- og hús­næð­is­málum, sem dæmi,“ segir Kristrún. 

„Við erum að reyna að koma grunn­s­viðs­myndum á hreint,“ segir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og bætir því við að for­menn­irnir séu mjög með­vit­aðir um efna­hags­málin. „Það þýðir ekki að það sé það eina sem sé verið að horfa á, alls ekki. Auðvitað er verið að ræða auð­lindir, vel­ferð, hús­næð­is­markað og annað. En við vitum að ef við hreyfum okkur rangt út frá efna­hags­mál­unum þá grefur það undan öllu öðru.

Við viljum að þessi rammi og til­finn­ing allra sé sú sama. Þannig að þegar við förum síðan að skipta okkur meira af hversu mikið við ætlum að beita okkur í hverjum og einum mála­flokki að við vitum að við séum innan svig­rúms. Um það snýst þessi vinna í raun.“

„Við vitum að ef við hreyfum okkur rangt út frá efna­hags­mál­unum þá grefur það undan öllu öðru
Kristrún Frosta­dóttir
for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar

Samstiga um margt

Hún segir aðspurð að við­ræður flokk­anna séu komnar mjög vel á veg í efna­hags­mál­unum. „Við erum allar sam­mála um að við viljum reiða okkur sem minnst á Seðla­bank­ann hvað það varðar að vextir þurfi að vera hér áfram háir og að verð­bólg­unni sé náð fyrst og fremst niður með því.“

Kristrún segir þó að ekki sé tíma­bært að fara yfir hvernig áætlun í efna­hags­málum myndi líta út. „Ef þessu lýkur með stjórn­ar­sátt­mála þá fylgja því ekki full­mótuð fjár­lög eða fjár­mála­á­ætlun – en þá er fólk með sam­stiga vænt­ingar um hvernig vinnan fer af stað.“

Spurð hvort nið­ur­staða sé komin í ein­hverjum málum segir Kristrún að flokk­arnir hafi verið fyrir fram sam­stiga um margt. Hún tekur þó fram að það sé heldur ekki tíma­bært að ræða það sér­stak­lega. „Fólk getur nú bara lagt tvo og tvo saman og skoðað kosn­inga­á­herslur flokk­anna, til dæmis, og áttað sig kannski á því hvar línan liggur hvað það varðar. Það er ýmis­legt sem þurfti ekki miklar umræður.“ 

Ótímabært að tjá sig um ráðherra

Í gær skrif­aði almanna­teng­ill­inn Andrés Jónsson færslu á Facebook þar sem hann sagði að sam­kvæmt hans heim­ildum nálægt stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum kæmi til greina að kalla til allt að þrjá utan­þings­ráð­herra í svo­kall­aða Val­kyrj­u­stjórn. Nefndi hann til dæmis að Daði Már Krist­ó­fers­son, frá­far­andi vara­þing­maður Við­reisnar, gæti orðið fjár­mála­ráð­herra. 

Þegar þessi spá er borin undir Kristrúnu seg­ist hún lítið geta tjáð sig, enda sé ekki tíma­bært að segja til um það hvernig rík­is­stjórnin muni líta út ef hún verður mynduð. Ekkert hafi verið talað um end­an­lega skipt­ingu á ráðu­neytum.

„Ég get alveg skilið að fólk hefur áhuga á því að geta í eyð­urnar. Það getur verið áhuga­vert og skemmti­legt. Það er ekk­ert tíma­bært að fara að tjá sig um þetta þegar það er ekki einu sinni búið að klára þessa umræðu. Hún er svona rétt á fyrstu metr­unum.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár