Við erum ekkert „trailer trash“

Við erum ekkert „trailer trash“

Lilja Karen varð ólétt eftir glasa­frjóvgun þegar hún bjó á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dalnum og á dög­unum fagn­aði dóttir hennar árs afmæli. Afmæl­is­veislan var haldin í hjól­hýsi litlu fjöl­skyld­unnar á Sæv­ar­höfða, þar sem þær mæðgur búa ásamt hinni mömm­unni, Frið­meyju Helgu. „Okkar til­finn­ing er að það hafi verið leitað að ljótasta staðnum fyrir okkur,“ segir Friðmey, og á þar við svæðið sem Reykja­vík­ur­borg fann fyrir hjól­hýsa­byggð­ina.

Við fluttum hingað bara í sumar en ég bjó í Laug­ar­dalnum, með hinum íbú­unum hér, í tvö og hálft ár. Þá vorum við bara með hús­bíl­inn,“ segir Lilja Karen  Norðquist Jóns­dóttir og bendir á hús­bíl­inn við hlið­ina á hjól­hýs­inu sem við sitjum í, á plan­inu við Sæv­ar­höfða, þangað sem hjól­hýsa­byggðin flutti frá Laug­ar­dalnum sum­arið 2023. Hjól­hýsið er vel útbúið; nýtt og inn­flutt frá Þýska­landi.

„Hjólhýsi, já. Þetta svæði, nei.
Friðmey

Lilja er trú­lofuð Friðmey Helgu Ellerts og búa þær bæði í hjól­hýs­inu og hús­bílnum. Þeim finnst hjól­hýsa­lífið gott en eru þó ósáttar við að byggð­inni hafi verið gert að flytja á Sæv­ar­höfð­ann, eða eins og Friðmey orðar þetta: „Hjólhýsi, já. Þetta svæði, nei.“

Rætt er við Lilju Karen, Frið­meyju Helgu og fleiri íbúa hjól­hýsa­byggð­ar­innar í for­síðu­um­fjöllun Heim­ild­ar­innar.

Íbúðin ekki íbúðarhæf

Þær bjuggu í Laug­ar­dalnum í hálft þriðja ár, eða …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhanna Gunnarsdóttir skrifaði
    Ég gæti vel hugsað mér svona líf, svo ég skil þær mjög vel. En ég er sammála því að umhverfið er ekki í lagi og ætti klárlega að vera hægt að búa betur utan um svona byggð. Ég sé fyrir mér innan um tré og gróður, svona sælureitur í byggð. Frábært að lesa, innilegar hamingjuóskir með stelpuna og gangi ykkur vel ♥️
    6
  • Hulda Guðjónsdóttir skrifaði
    Ég var að velta fyrir mér hvort þær eigi enn íbúðina sem faðir Lilju seldi þeim. Ef það er svo, þá er spurning hvort ekki sé hægt að hjálpa þeim að gera hana íbúðarhæfa?
    0
    • Lilja Karen Jónsdóttir skrifaði
      Kemur eingum við.. Þetta búsetuform vil ég búa í..
      4
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta er til skammar fyrir Reykjavíkurborg að bjóða fólkinu ekki sómasamlega aðstöðu.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í einbýlishúsi“
VettvangurHjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í ein­býl­is­húsi“

Bergþóra Páls­dóttir, Bebba, hefur unun af því að fá gesti til sín í hjól­hýsið og finnst þetta svo­lítið eins og að búa í ein­býl­is­húsi. Barna­börnin koma líka í heim­sókn en þau geta ekki farið út að leika sér í hjól­hýsa­byggð­inni í Sæv­ar­höfð­anum: „Þau skilja ekki af hverju við vorum rekin úr Laug­ar­dalnum og sett á þennan ógeðs­lega stað.“
„Aldrei verið í boði að gefast upp“
SkýringHjólhýsabyggðin

„Aldrei verið í boði að gef­ast upp“

Íbúum hjól­hýsa­byggð­ar­innar í Laug­ar­dalnum var sagt að þau þyrftu að flytja upp á Sæv­ar­höfða í 8 til 12 vikur og síðan yrði þeim fund­inn annar staður til að búa á. Síðan eru liðnar 78 vikur. Íbúarnir halda nú þar sín önnur jól og vita ekk­ert hvert fram­haldið verður. „Ég er nátt­úr­lega brjáluð,“ segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir, íbúi á svæð­inu og for­maður Samtaka hjóla­búa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár