„Þetta er eins og að búa í einbýlishúsi“

„Þetta er eins og að búa í einbýlishúsi“

Bergþóra Páls­dóttir, Bebba, hefur unun af því að fá gesti til sín í hjól­hýsið og finnst þetta svo­lítið eins og að búa í ein­býl­is­húsi. Barna­börnin koma líka í heim­sókn en þau geta ekki farið út að leika sér í hjól­hýsa­byggð­inni í Sæv­ar­höfð­anum: „Þau skilja ekki af hverju við vorum rekin úr Laug­ar­dalnum og sett á þennan ógeðs­lega stað.“

Hjól­hýsið hennar Bergþóru Páls­dóttur er það sem kemst næst því að vera félags­mið­stöð í hjól­hýsa­byggð­inni á Sæv­ar­höfða. Hún er aldrei kölluð annað en Bebba og býður alltaf upp á eitt­hvað gott með kaff­inu. Hræri­vélin er uppi á eld­hús­borð­inu og bak­arofn­inn er í góðu standi. „Ég baka voða­lega mikið – ban­ana­brauð, skúffukökur, möffins. Bara hitt og þetta sem mér dettur í hug,“ segir hún.

Eins og þau flest sem búa á Sæv­ar­höfð­anum bjó hún áður í hjól­hýs­inu sínu á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dal. Þau sem bjuggu þar höfðu aðgang að efri kló­sett­unum. „Og ég sá um að þrífa þau, halda þeim hreinum, bæði kvenna- og karla­megin,“ segir hún.

„Þar gátu þau farið út að leika sér en hér eru bara gler­brot og drasl

Eldhús er kannski ekki rétt­nefni fyrir eld­un­ar­að­stöð­una í hjól­hýs­inu. Þetta er eld­hús­krókur – á milli hans og rúms­ins eru smáar hillur, og á einni þeirra er við­ar­hjarta …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁS
    Áslaug Sigurjónsdóttir skrifaði
    Að bjóða upp á þessa aðstöðu er spurning hvort það jafnist ekki á við sama fálæti eins og skemman fyrir íbúðirnar í Breiðholtinu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hjólhýsabyggðin

Við erum ekkert „trailer trash“
VettvangurHjólhýsabyggðin

Við erum ekk­ert „trailer trash“

Lilja Karen varð ólétt eftir glasa­frjóvgun þegar hún bjó á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dalnum og á dög­unum fagn­aði dóttir hennar árs afmæli. Afmæl­is­veislan var haldin í hjól­hýsi litlu fjöl­skyld­unnar á Sæv­ar­höfða, þar sem þær mæðgur búa ásamt hinni mömm­unni, Frið­meyju Helgu. „Okkar til­finn­ing er að það hafi verið leitað að ljótasta staðnum fyrir okkur,“ segir Friðmey, og á þar við svæðið sem Reykja­vík­ur­borg fann fyrir hjól­hýsa­byggð­ina.
„Aldrei verið í boði að gefast upp“
SkýringHjólhýsabyggðin

„Aldrei verið í boði að gef­ast upp“

Íbúum hjól­hýsa­byggð­ar­innar í Laug­ar­dalnum var sagt að þau þyrftu að flytja upp á Sæv­ar­höfða í 8 til 12 vikur og síðan yrði þeim fund­inn annar staður til að búa á. Síðan eru liðnar 78 vikur. Íbúarnir halda nú þar sín önnur jól og vita ekk­ert hvert fram­haldið verður. „Ég er nátt­úr­lega brjáluð,“ segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir, íbúi á svæð­inu og for­maður Samtaka hjóla­búa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár