Viðreisn stærst í nýrri könnun

Viðreisn mælist stærsti flokk­ur­inn í nýrri könnun Prósents og Sam­fylk­ingin fer undir 20 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokkur mælist minni en Flokkur fólks­ins.

Viðreisn stærst í nýrri könnun
Upp og upp Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi Sós­í­alista­flokks­ins, og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, leiða tvo flokka sem gleðj­ast lík­lega yfir nið­ur­stöðum Pró­sentskönn­un­ar­innar.sem Morg­un­blaðið birti í dag. Mynd: Golli

Viðreisn mælist stærstir í nýrri könnun Prósents fyrir Morg­un­blaðið. Sam­fylk­ingin er næst stærsti flokk­ur­inn með 18,3 pró­sent. Ekki er þó mark­tækur munur á flokk­unum tveimur. Píratar stökkva upp fyrir fimm pró­senta markið og mæl­ast með 6,7 pró­sent í könn­un­inni. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 11,5 pró­sent í könn­un­inni og mælist minni en Flokkur fólks­ins, sem hefur 12,5 pró­sent í Pró­sent­könn­un­inni. Mið­flokkur er einu pró­sentu­stigi ofar, með 13,5 pró­sent. 

Sós­í­alistar mæl­ast með 6,4 pró­sent.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist undir 5 pró­senta mark­inu og hafa stuðn­ing 4,4 pró­sent kjós­enda. Vinstri græn eru í svip­aðri stöðu og í fyrri mæl­ingu með slétt 3 pró­sent.

Vik­mörkin í könn­un­inni eru mikil, segir í umfjöllun Dagmála um nið­ur­stöð­urnar, þar sem þær voru fyrst kynntar. Það er til að mynda ekki mark­tækur munur á Sam­fylk­ingu og Viðreisn, þrátt fyrir að töl­urnar sýni 3,7 pró­sentu­stiga mun. Fram­sókn­ar­flokkur er ekki alveg út úr mynd­inni heldur, þó flokk­ur­inn sé …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu