Snörp orðaskipti í réttarsal: „Þú hefur ekki orðið!“

Annar dagur aðal­með­ferðar í mann­dráps­máli gegn hjúkr­un­ar­fræð­ingi fór fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Þar áttu sér stað snörp orða­skipti á milli dóm­ara og lög­manns þegar nýjar upp­lýs­ingar komu upp. Málið hefur verið lagt í dóm í annað skiptið í hér­aði.

Snörp orðaskipti í réttarsal: „Þú hefur ekki orðið!“
Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son átti í hörðum orða­skiptum sem leiddi þó til þess að lög­mað­ur­inn fékk sínu fram­gengt.

Það var hart deilt í rétt­ar­sal Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í morgun þar sem þess var kraf­ist að nið­ur­stöðu emb­ættis Land­læknis, um það sem átti sér stað dag­inn sem kona lést á með­ferð­ar­geð­deild 33A í ágúst 2021, yrði aflað og lagt fyrir dóm­inn sem sönn­un­ar­gagn.

Hörð orða­skipti gengu á milli lög­manns Steinu Árna­dóttur, Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar, og aðal­dóm­ara í fjöl­skip­uðum dómi - og gekk svo langt að dóm­ara var mis­boðið og tók af honum orðið í harðri en snar­pri rimmu þeirra á milli.

Ástæðan var vitn­is­burður fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra hjúkr­unar hjá Land­spít­al­anum sem upp­lýsti um skýrslu sem verj­andi hafði ekki heyrt af. Vitn­is­burður hennar var tak­mark­aður þar sem hún var ekki einn af höf­undum skýrsl­unnar.

Landlæknir gerði úttekt á málinu

Annar dagur í saka­máli gegn Steinu Árna­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ingi fór fram í dag, en hún er ákærð fyrir mann­dráp í opin­beru starfi, með því að hafa banað konu á geð­deild …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár