Viðreisn tekur stórt stökk í mælingu Prósents

Ný mæling á fylgi flokka frá Prósent sýnir Viðreisn taka stökk alveg upp að hælum Samfylk­ing­ar­innar, en báðir flokkar mælast nú með yfir 21 prósents fylgi. Sjálfstæðis­flokkurinn mælist með 12 prósent fylgi í þessari nýju könnun sem er versta mæling sem flokkurinn hefur fengið nokkru sinni. Hvorki Píratar né Vinstri græn mælast með yfir fimm prósenta fylgi á landsvísu.

Prósent
Prósent Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son leiða Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Mynd: Golli

Hvorki Píratar né Vinstri græn mælast með 5 prósent fylgi á landsvísu í nýrri könnun Prósents, en fylgi Pírata mælist 3,4 prósent og Vinstri grænna 2,4 prósent í könnuninni. Að auki mælist fylgi Lýðræðis­flokksins 1 prósent.

Sósíalista­flokkurinn mælist hins vegar með með 5,4 prósent fylgi á landsvísu í þessari könnun, litlu minna en Framsókn sem mælist nú með 5,6 prósenta fylgi. Aðrir flokkar mælast með tveggja stafa fylgis­tölur í þessari nýjustu mælingu Maskínu.

Könnun Prósent 8.–14. nóvember 2024
Könnun Prósents fyrir Morgunblaðið og mbl.is
Samfylkingin
22,4%
Viðreisn
21,5%
Miðflokkurinn
15,5%
Sjálfstæðisflokkurinn
12,0%
Flokkur fólksins
10,2%
Framsókn
5,6%
Sósíalistaflokkurinn
5,4%
Píratar
3,4%
Vinstri græn
2,4%
Lýðræðisflokkurinn
1,0%
Heimild: Prósent. Úrtak 2.600, svarhlutfall 52%. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.

Samfylkingin og Viðreisn mælast stærstu flokkar landsins í könnunni, en báðir flokkar bæta við sig frá síðustu mælingu Prósents og Viðreisn allverulega. Fylgi Samfylkingar er nú 22,4 prósent en fylgi Viðreisnar 21,5 prósent.

Miðflokkurinn mælist ögn stærri en í síðustu viku, með 15,5 prósent fylgi en Sjálfstæðis­flokkurinn fær sína verstu mælingu í skoðana­könnun nokkru sinni og mælist með 12 prósent fylgi í þessari könnun Prósents. Flokkur fólksins mælist með …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár