Verðbólga í vasa stórkaupmanna

Fyr­ir­tækin sem selja neyt­endum mat­vörur hafa grætt vel á verð­bólgu­tímunum sem verið hafa á Íslandi und­an­farin miss­eri. Neyt­endur virð­ast bera hit­ann og þung­ann af hækk­unum á sama tíma og það hefur sjaldan ef nokkurn tíman verið jafn­arð­bært að reka mat­vöru­keðjur hér á landi.

Verðbólga í vasa stórkaupmanna

Aldrei hefur verið meiri hagn­aður fólg­inn í því að selja íslenskum neyt­endum mat­vöru. Á sama tíma og mat­ar­k­arfan hækkar nær stöðugt í verði hafa hlut­hafar í stærstu mat­vöru­keðjum lands­ins sjaldan fengið jafn­mikið í vas­ann og nú. Mismunur á kostn­aði sem búð­irnar greiða og hvað þær rukka fyrir mat­vöru hefur auk­ist um millj­arða á síð­ustu árum. Laun og annar kostn­aður við rekst­ur­inn hefur hækkað mun minna, enda hefur hagn­að­ur­inn tvö­fald­ast á fimm árum. Á sama tíma þurfa nú fleiri heim­ili að ganga á sparifé eða safna skuldum til að láta enda ná saman um hver mán­aða­mót.

Milljarðar í aukna framlegð

Frá því að verð­bólgan tók sig aftur á flug á Íslandi síð­sum­ars árið 2021 hefur mat­væla­verð hækkað mánuð eftir mánuð, um sam­tals 28,6 pró­sent á þriggja ára tíma­bili. Krón­urnar sem fólk þarf að tína úr veskjum sínum á sjálfs­af­greiðslukössum þess­ara …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Friðrik Svanur Sigurðarson skrifaði
    Getur verið að Kaupmenn haldi verðlagi háu en kenni sjálfir verðbólgu um hátt vöruverð. Sem svo ýtir undir verðbólgu í beinu orsakasamhengi.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Um hvað er kosið?

Kýs svo ekki verði farið með dæturnar eins og föður þeirra
FréttirUm hvað er kosið?

Kýs svo ekki verði farið með dæt­urnar eins og föður þeirra

Þrátt fyrir að hafa verið íslenskur rík­is­borg­ari í 12 ár hefur Patience Afrah Antwi ein­ungis einu sinni kosið hér á landi. Nú ætlar hún að ganga að kjör­kass­anum fyrir dætur sínar. Mæðgurnar hafa mætt for­dómum og seg­ist Patience upp­lifa sig sem fjórða flokks vegna brúns húð­litar. Hún fann skýrt fyrir því þegar eig­in­maður hennar, og faðir stúlkn­anna, veikt­ist alvar­lega fyrir sjö árum síðan. Hann lést í fyrra.
Borgar helmingi meira fyrir matvörur hér en í Japan
FréttirUm hvað er kosið?

Borgar helm­ingi meira fyrir mat­vörur hér en í Japan

Stefán Þór Þor­geirs­son, leik­ari og hlað­varps­stjórn­andi, og eig­in­kona hans, Sherine Otomo Bouhafs inn­an­húss­hönn­uður fluttu nýverið með árs­gömlum syni sínum til lands­ins eftir að hafa búið í tvö ár í Japan. Stefán segir að verð mat­ar­körf­unnar hafi breyst mikið frá því hann flutti út árið 2022, sér­stak­lega verð á ávöxtum og græn­meti. Mat­ar­k­arfan sé helm­ingi ódýr­ari í Japan.
Alþjóðamál valda fólki áhyggjum en hreyfa sennilega fá atkvæði
ÚttektUm hvað er kosið?

Alþjóða­mál valda fólki áhyggjum en hreyfa senni­lega fá atkvæði

Fátt bendir til þess að alþjóða­mál ráði atkvæðum margra í kom­andi alþing­is­kosn­ingum en þróun alþjóða­mála veldur þó meiri­hluta þjóð­ar­innar áhyggjum sam­kvæmt nýlegri könnun sem fram­kvæmd var fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið. Eins og nýleg dæmi sanna þá skiptir það Íslend­inga einnig máli hvernig stjórn­völd nýta rödd sína í sam­fé­lagi þjóð­anna.
Byggjum við af gæðum?
ViðtalUm hvað er kosið?

Byggjum við af gæðum?

Vinna við yfir­stand­andi rann­sókn á gæðum nýrra hverfa sem byggð­ust upp hér­lendis frá 2015 til 2019 gefur til kynna að sam­göngu­teng­ingar og aðgengi að nær­þjón­ustu á þessum nýju búsetu­svæðum sé í fæstum til­vikum eins og best verður á kosið. Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir skipu­lags­fræð­ingur von­ast eftir umræðu um gæði byggðar, en ekki bara magn­tölur íbúð­ar­ein­inga, fram að kosn­ingum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár