Skila tillögu að flokkun vindorkukosta fyrir kosningar

Þeir tíu vind­orku­kostir sem verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hefur rýnt og ætlar að leggja fram til opins sam­ráðs fljót­lega, eru á Vest­ur­landi, á Reykja­nesskaga, Mos­fells­heiði og Mel­rakka­sléttu. Engin opin­ber stefna liggur enn fyrir um nýt­ingu vind­orku hér á landi.

Skila tillögu að flokkun vindorkukosta fyrir kosningar

Verk­efn­is­stjórn 5. áfanga ramma­á­ætl­unar stefnir að því að leggja skýrslu með til­lögum að flokkun tíu vind­orku­kosta fram til opins sam­ráðs á næstu tveimur vikum. Þetta segir í svari Sóleyjar Bjarna­dóttur, starfs­manns verk­efn­is­stjórnar, við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. Að loknu sam­ráði, þar sem allir geta komið með athuga­semdir, fer til­laga verk­efn­is­stjórnar til ráð­herra umhverf­is­mála. Það er hans að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu með flokkun virkj­ana­kosta í ýmist nýt­ingar-, bið- eða vernd­ar­flokk, byggða á til­lögum verk­efn­is­stjórnar og athuga­semdum við þær, sem Alþingi tekur svo til með­ferðar og afgreiðslu.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra lagði í haust fram á Alþingi í annað sinn til­lögu að stefnu stjórn­valda í vind­orku­málum og breyt­ing­ar­til­lögu laga um ramma­á­ætlun sem fjall­aði sér­stak­lega um vind­orku. Áður en umræða um þau mál hófst var rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu slitið og engin opin­ber stefna í nýt­ingu vind­orku liggur því fyrir. Þrátt fyrir það heldur verk­efn­is­stjórnin sínu striki enda byggir starf hennar á gild­andi lögum og reglum, ekki áformum um breyt­ingar á þeim.

Tveir orku­kostir í vind­orku eru nú þegar í orku­nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar: Búr­fellslundur og Blöndu­lundur og báðir eru þeir á vegum Lands­virkj­unar. Fram­kvæmdir við þann fyrr­nefnda hófust nýverið.

„Við teljum því að það eigi ekki að byggja vind­myllur á svæðum þar sem hafernir eru tölu­vert á ferð­inni
Sunna Björk Ragn­ars­dóttir og Snorri Sig­urðs­son,
sviðs­stjórar hjá Nátt­úru­fræði­stofnun.

Tugir ann­arra vind­orku­á­forma eru á teikni­borð­inu og hafa um 40 slíkar hug­myndir verið sendar Orku­stofnun. Auk kost­anna tíu sem nú hafa verið rýndir hefur verk­efn­is­stjórn 5. áfanga, sem á að ljúka sínum störfum í mars næst­kom­andi, fengið 22 að auki til með­ferðar. Þar sem stytt­ist í að skip­un­ar­tím­inn renni út er lík­legt, að sögn Sóleyjar, að þessir 22 kostir komi til kasta næstu verk­efn­is­stjórnar.

Í mikilli hæð yfir sjávarmáli

Vind­orku­ver hafa marg­vís­leg umhverf­is­á­hrif. Þau ver sem fyr­ir­hugað er að reisa hér á landi myndu flest telja tugi vind­mylla hvert sem hver og ein yrði á bil­inu 150–250 metrar á hæð. Þá vilja vind­orku­fyr­ir­tækin, sem eru lang­flest í eigu erlendra aðila, reisa ver sín á hæðum, heiðum og jafn­vel fjöllum sem myndi þýða að mann­virkin myndu sjást enn víðar að. Hljóð­mengun og svo­kallað skuggaflökt vegna spað­anna sem snú­ast stöðugt, eru einnig meðal áhrifa sem taka verður til­lit til.

Hafernir í hættu

Fyrir utan sjón­meng­un­ina hafa vind­orku­ver áhrif á fugla­líf og eru þau umhverf­is­á­hrif fyr­ir­ferð­ar­mikil í umræðu. Fuglar eru gjarnir á að fljúga á vind­myllur, ýmist turna þeirra eða spaða, og sær­ast eða drep­ast. Hug­myndir eru uppi um að reisa vind­orku­ver á mik­il­vægum fugla­svæðum á Íslandi, meðal ann­ars nokkur á Vest­ur­landi þar sem búsvæði hafarna er að finna. Fjögur þeirra vera sem verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar birtir senn til­lögu um flokkun á eru á Vest­ur­landi og þrjú þeirra, Garps­dalur, Sól­heimar og Hrúta­virkjun, eru bein­línis í eða við þekktar flug­leiðir hafarna. 

Risa­vaxiðVind­myllur sem not­aðar eru í dag eru gríð­ar­lega stór mann­virki, oft á bil­inu 150-250 metrar á hæð.

Á þetta hafa Umhverfis- og Nátt­úru­fræði­stofnun báðar bent og lýst áhyggjum af áhrifum sem gætu orðið á hinn við­kvæma stofn hafarna hér á landi. Að mati Umhverf­is­stofn­unar má eiga von á því að í það minnsta einn haf­örn á ári myndi fljúga á vind­myllur í Sól­heima­ver­inu sem franska fyr­ir­tækið Qair áformar á Lax­ár­dals­heiði í Dala­byggð. Nátt­úru­fræði­stofnun hefur bein­línis lagst gegn bygg­ingu þess vers og lagt til að því verði fund­inn annar staður.

Meðal gagna sem birt verða með skýrslu verk­efn­is­stjórnar á næstu dögum er skýrsla fag­hóps um áhrif vind­orku­vera á fugla­líf.

Vantar orku á móti

Vind­orku­ver fram­leiða ekki raf­orku nema að vindur blási. Því þurfa slíkar virkj­anir það sem kallað er jafn­væg­is­orka. Hún þarf að koma frá vatns­afls­virkj­unum sem geta geymt orku, ef svo má að orði kom­ast, í miðl­un­ar­lónum sínum. 

Slíka umframorku er hins vegar ekki að finna í íslenska raf­orku­kerf­inu eins og staðan er í dag. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Á. skrifaði
    Skipulagsyfirvöld hafa skyldu samkvæmt lögum til að skipuleggja verndarsvæði, þar á meðal fuglaverndarsvæði. Ef hafernir þurfa vernd, af hverju er þá ekki til fuglaverndarsvæði fyrir þá?
    1
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Er búið að samþykkja þetta glapræði? Þá ætla ég að fullyrða að ríkisstjórnin og allir sem styðja þetta verkefni eru hryðjuverkamenn. Og hvað er gert við slíka?
    1
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Vindmyllur á hvern hól, og allur hagnaðurinn fluttur úr landi í vasa erlendra eiganda. Frábært plan.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár