CCP sagðist endurskoða fjölda starfa á Íslandi vegna lagabreytinga

Í bandorms­frumvarpi sem komið er fram á þingi eru lagðar til breytingar sem snerta styrki til öflugustu fyrir­tækjanna í hugverka­iðnaðinum hérlendis. CCP og fleiri fyrirtæki risu upp á aftur­lappirnar þegar frum­varpið var kynnt í samráðs­gátt stjórn­valda á dögunum og fer frumvarp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjármála­ráðherra ögn mildari höndum um stærstu fyrir­tækin í bransanum en frumvarps­drögin gerðu.

CCP
CCP Hilmar Veigar Pét­urs­son er for­stjóri CCP, sem er með umfangs­mikla starf­semi í Reykja­vík þrátt fyrir að hafa verið selt til Suður-Kóreu árið 2018. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fram­lagðar tillögur að laga­breytingum, sem snerta endur­greiðslur á kostnaði fyrir­tækja í tengslum við rann­sóknir og þróun, hafa þegar leitt til þess að nýsköpunar­fyrirtækið CCP er nú með það til endur­skoðunar hvort vinna við þróun nýs tölvu­leiks fyrir­tækisins, Eve Frontier, fari áfram fram hér á landi.

Þetta kom fram í umsögn CCP við frumvarps­drög fjármála- og efnahags­ráðherra, svokallaðan bandorm um breytingar á ýmsum lögum sem áætlað er að klára með hraði fyrir þinglok og kosningar og hefur verið lagður, án mikilla breytinga, fram á þingi. 

Í umsögn CCP sem barst inn í samráðs­gátt stjórn­valda 20. október segir að þessi eini tölvu­leikur fyrir­tækisins hafi þegar komið með erlenda fjár­festingu upp á 5,6 milljarða til landsins og skapað um 50 ný stöðu­gildi hérlendis og gefið er í skyn að ef breytingarnar raun­gerist færi CCP störf í þróunar­starfsemi sinni frá landinu. 

Töldu frumvarpið afsprengi glundroða í stjórnmálum

„Breytingar sem lagðar …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár