Ráðherrar Vinstri grænna orðnir óbreyttir þingmenn

Þrír ráð­herrar Vinstri grænna gengu út af rík­is­ráðs­fundi á Bessa­stöðum sem óbreyttir þing­menn. Starf­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hefur tekið við. Formenn þeirra flokka skiptu á milli sín ráðu­neyt­unum sem Vinstri græn stýrðu áður.

Ráðherrar Vinstri grænna orðnir óbreyttir þingmenn
Í kjöl­far þess að for­sæt­is­ráð­herra fékk heim­ild til að rjúfa þing komu ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sóknar og Vinstri grænna saman á Bessa­stöðum þar sem hald­inn var rík­is­ráðs­fundur. Eftir fund­inn voru ráð­herr­arnir þremur færri. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra, hélt til fundar við Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands á mánu­dag þar sem hann óskaði eftir heim­ild til þing­rofs. Daginn áður hafði Bjarni greint for­mönnum sam­starfs­flokka sinna í rík­is­stjórn frá þess­ari fyr­ir­ætlan sinni, þeim Sigurði Inga Jóhann­essyni og Svandísi Svav­ars­dóttur.

Ekki hafði hins vegar verið boðað til rík­is­stjórn­ar­fundar til að ræða þetta og telst upp­lýs­inga­gjöf for­sæt­is­ráð­herra til þeirra því hafa verið með óform­legum hætti, en ekki eftir þeim form­legu leiðum sem hefð­bundið er að fara við slíkar aðstæður, þó þing­rof sé sann­ar­lega allt annað en hefð­bund­inn gjörn­ingur.

Seinna um dag­inn ræddi Halla við for­menn ann­arra flokka sem sæti eiga á þingi, einn í einu, um þær hug­myndir sem Bjarni hafði lagt fyrir hana um að rjúfa þing. 

Næsta dag, á þriðju­dag, hélt for­sæt­is­ráð­herra aftur á fund við for­seta, nú til að biðj­ast lausnar frá emb­ætti sínu og ráðu­neyt­is­ins. Seinna sama dag til­kynnti for­set­inn að hún hafi fall­ist á þing­rofið.

Þá sagði Svandís að Vinstri græn myndu ekki taka þátt í starfs­stjórn fram að kosn­ingum og gaf sömu­leiðis út að næsta dag yrðu ráð­herrar flokks­ins orðnir að almennum þing­mönnum.

Seinna kom í ljós að ákveðin forms­at­riði þyrfti að upp­fylla áður en það yrði staðan, forms­at­riði sem yrðu afgreidd á rík­is­ráðs­fundi, en Svandís sagði enn­fremur í gær að hún hafi fengið „mis­vísandi“ skila­boð frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um hvenær ráð­herrar Vinstri grænna hættu að vera ráð­herrar.

Ráð­herr­arnir rit­uðu nöfn sín í gesta­bók hjá for­seta Íslands á Bessa­stöðum þegar þeir mættu á rík­is­ráðs­fund­inn.

Þessi forms­at­riði voru síðan afgreidd á rík­is­ráðs­fundi sem hald­inn var á Bessa­stöðum klukkan 18 í dag.

Þegar til­kynnt var um það, eftir rík­is­stjórn­ar­fund á þriðju­dag, að þeir myndu taka yfir þessi ráðu­neyti sagði Bjarni aðspurður að þetta hefði verið gert á þennan hátt - að for­menn­irnir tækju þau yfir - vegna þess að þetta sé bráða­birgða­ráð­stöfun sem von­ast sé til að vari ekki lengi. Fordæmi væru fyrir því að ráð­herrar taki yfir ráðu­neyti við slíkar aðstæður.

Þingið var form­lega rofið í morgun og við tekur kosn­inga­bar­áttan, en kosið verður til Alþingis þann 30. nóv­em­ber.

Þangað til mun starfs­stjórnin, undir for­ystu Bjarna, þó vinna að því að koma fjár­laga­frum­varp­inu í gegn um þingið en það var lagt fram áður en til stjórn­ar­slita kom. Bjarni hefur lagt áherslu á mik­il­vægi þess að afgreiða fjár­lögin og von­ast til sam­starfs allra flokka á Alþingi til þess.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár