Einn af óteljandi möguleikum til að fara í óvissuferð er Laugavegurinn frá mótunum við Hlemm, þaðan sem eiginleg verslunargata hefst, og að mótum Barónsstígs og Laugavegs. Á þessum stutta spotta leynast fjölmargir spennandi áningarstaðir, bæði nýir og gamlir. Hér er stiklað á nokkrum:
Fersk hráefni og taílensk vín
Tilvalið er að hefja gott kvöld á Ban Thai á Laugavegi 130 en staðurinn hefur oftar en einu sinni verið kosinn besti taílenski veitingastaðurinn á Íslandi – af The Reykjavik Grapevine.
Á heimasíðu staðarins má lesa að hann hefur starfað og boðið upp á ekta taílenskan mat í 33 ár: „... alveg eins og hann er í Taílandi.“
Að mati menningarvitans er maturinn á Ban Thai brjálæðislega góður. Þar er einnig boðið upp á Singha-bjór og m.a. taílenskt vín og viskí.
Á síðu staðarins kemur einnig fram að maturinn er létt eldaður úr ferskum hráefnum til að halda upprunalegu …
Athugasemdir