Ragnar Kjartans og Egill Helga ósammála um hvað sé list

Ragnar Kjart­ans­son lýsir yfir fullum stuðn­ingi við verk Odees „We‘re SORRY”. Í stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu.skrifar Ragnar: „Aug­ljós­lega er þetta lista­verk“. Egill Helgason sér verkið öðrum augum: „Þetta er hrekkur“.

Ragnar Kjartans og Egill Helga ósammála um hvað sé list
Ragnar Kjart­ans­son: „Aug­ljós­lega er þetta lista­verk,“ skrifar Ragnar. „Odee gerir óhefð­bundið en marglaga og póli­tískt verk í raun­heimi dags­ins; inter­net­inu, sem vana­lega er stjórnað af spuna­meist­urum fyr­ir­tækja.“ Mynd: MBL / Hanna Andrésdóttir

Verk lista­manns­ins Odee – öðru nafni Odds Eysteins Frið­riks­sonar – heldur áfram að tendra spurn­ingar af bæði list­rænum og lög­fræði­legum toga.

Mynd­list­ar­mað­ur­inn Ragnar Kjart­ans­son hefur gefið út stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu þar sem hann segir það sorg­legt að sjá eins stórt fyr­ir­tæki og Samherja sýna annan eins skort á húmor og um leið van­virð­ingu fyrir list­rænu frelsi. Neyð­ar­legt sé að horfa upp á Samherja saka íslenskan lista­mann um það að hafa ófrægt orð­spor fyr­ir­tæk­is­ins með lista­verk­inu „We‘re SORRY“ og stefnt honum fyrir rétt í Bret­landi.

„Aug­ljós­lega er þetta lista­verk,“ skrifar Ragnar. „Odee gerir óhefð­bundið en marglaga og póli­tískt verk í raun­heimi dags­ins; inter­net­inu, sem vana­lega er stjórnað af spuna­meist­urum fyr­ir­tækja.“

Ragnar hefur nú skorað á Samherja að láta kærur gagn­vart Odee niður falla.

Yfir­lýs­ing Ragnars Kjart­ans­sonarHér má sjá stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu Ragnars Kjart­ans­sonar við verk Odee, þess efnis að verkið sé lista­verk.

 „Áhugavert, löglistfræðilegt álitamál“

Sjálfur hefur lista­mað­ur­inn sagt: „Þetta er list­stefna sem heitir menn­ing­ar­brengl eða culture jamm­ing. Heims­þekktir lista­menn hafa unnið eftir þess­ari list­rænu stefnu, eins og Banksy, The Yes Men og Nadia Plesner. Hún gengur út á að taka yfir eða breyta sam­skiptum fyr­ir­tækja eða stofn­anna. Til þess að skapa nýja tján­ingu sem lista­mað­ur­inn stýrir.“

En fleiri velta þessu fyrir sér og á Facebook-síðu sinni skrifar rit­höf­und­ur­inn Guð­mundur Andri Thorsson færslu þar sem hann segir meðal ann­ars: „ ... Er lista­verk veru­leiki? Er lista­verk ekki í eðli sínu alltaf skrök? Skrök sem færir fram sann­leik­ann? Ef ég skrif­aði í ljóði eða skáld­sögu að Samherji hefði beðið namibísku þjóð­ina afsök­unar myndi það senni­lega ekki hafa neinar aðrar afleið­ingar en þeir fáu sem læsu ypptu öxlum og segðu: „Það er gáll­inn á honum í dag, blessuðu skáld­inu“ en þegar Odee útfærir hug­mynd sína svo nákvæm­lega er spurn­ing hvort hann fer yfir mörk lista­verks­ins og inn á svið veru­leik­ans. Þetta er sem sagt áhuga­vert, lög­list­fræði­legt álita­mál. Skyldu ekki vera til list­lög­fræð­ingar?“ spyr Guð­mundur Andri.

Rit­höf­undur og fyrrum þing­maðurGuð­mundur Andri Thorsson veltir mál­inu fyrir sér á Facebook og spyr spurn­inga.
„Leik­húsið hefur nú líka heldur betur staðið sig í slíkum „hrekkjum” í gegnum tíð­ina. Allt of lítið þegar við erum södd og rík.“
Helga Vala Helga­dóttir

 Hvað er list?

Hrekkur fremur en listEgill Helgason telur verkið vera hrekk frekar en list.

Í umræðum sem þar hafa skap­ast virð­ist sjón­varps­mað­ur­inn Egill Helgason ekki vera á þeim skónum að um sé að ræða list en hann skrifar í athuga­semd: „Ég veit ekki hversu gagn­legt, vit­ur­legt eða djúpt er að kalla alla mögu­lega hluti list ­– reyndar virð­ist mynd­listin sér­stak­lega ofur­seld þessu. (Mér finnst hún alltaf skemmti­leg sagan af safn­stjór­anum sem hætti störfum í örvinglan af því hann skildi ekki lengur hvað tald­ist list – hún er sönn.) Þetta er hrekkur - það sem kall­ast á ensku prank – kannski ágæt­lega heppn­aður. En spurn­ing hvort breski dóm­stóll­inn taki það að sér að úrskurða hvað er list?”

 

Lista­maður og lög­maðurHelga Vala Helga­dóttir er bæði lista­maður og lög­maður.

Lög­mað­ur­inn, leik­konan og fyrrum þing­mað­ur­inn, Helga Vala Helga­dóttir, svara honum þá: „Leik­húsið hefur nú líka heldur betur staðið sig í slíkum „hrekkjum” í gegnum tíð­ina. Allt of lítið þegar við erum södd og rík en þeim mun meira þar sem póli­tísk og sam­fé­lags­leg ólga kraumar, hvort sem um er að ræða Shakespe­are eða Þorleif Örn og Mikka Torfa svo ein­föld dæmi séu tekin.”

„Ég veit ekki hversu gagn­legt, vit­ur­legt eða djúpt er að kalla alla mögu­lega hluti list.”
Egill Helgason

Listrænt frelsi mikilvægt fyrir lýðræðið

Nýlega barst sú frétt að 27 alþjóð­leg og leið­andi sam­tök fyrir vernd fyrir upp­ljóstr­ara kalli nú eftir því að Samherji, sem sam­tökin kalla eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Evrópu, felli niður málið gegn lista­mann­inum.

Í bréf­inu er lögð áhersla á mik­il­vægi list­ræns frelsis fyrir heil­brigði lýð­ræð­is­ins.

Samtökin kalla eftir að eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Evrópu felli niður málið gegn lista­mann­inum. Samtökin linka á bréf á vef sínum sem má vitna í og birta snemma á morgun og styðja þar Odee og list­rænt frelsi hans til tján­ingar – sem geri okkur kleift að íhuga og kanna sið­ferð­is­legt val okkar en um leið skilja hvernig vald virkar og hefur áhrif á okkur, hvort sem það er póli­tískt, félags­legt eða efna­hags­legt.

Lögð er áhersla á sam­eig­in­legan grund­völl upp­ljóstr­ara og lista­manna hvað varðar mik­il­vægi þess að lýsa upp sann­leik­ann og afhjúpa í þágu almanna­heilla. Þá er spurt hvort þessar aðgerðir séu við hæfi eða til­raun til að þagga niður í þeim sem tali gegn spill­ingu. Í bréf­inu er meðal ann­ars minnt á dóms­málið í Namibíu og það að tíu grun­aðir hafi verið ákærðir, þar á meðal fyrrum dóms­mála­ráð­herra og fyrrum sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Og nefnt að rann­sókn á starf­semi Samherja standi enn yfir á Íslandi.

„Listin sjálf er fyrir rétti.”

Þess má geta að lög­menn Samherja virð­ast hafa aðrar hug­myndir um list af þessum orðum pistla­höf­undar Heim­ild­ar­innar að dæma en Sif Sig­mars­dóttir sat í dóms­salnum um dag­inn þegar málið var tekið fyrir og sagði í við­tali við Heim­ild­ina: „Oddur lýsir því sem „hring­leika­húsi fárán­leik­ans“ að sitja í breskum rétt­ar­sal í ein­hvers konar „rit­rýni“ um eigið verk. Í til­raun til að sýna fram á að heima­síðan, sem var hluti af verki Odds, væri ekki list lásu lög­menn Samherja upp skil­grein­ingu Ensku orða­bók­ar­innar á list. Oddur velti fyrir sér hversu gáfu­lega skil­grein­ingu hann fyndi þar um orðið „lög­fræði“.“

 Í umfjöllun The Art Newspaper um málið er vitnað í Andra Matei, lög­fræði­legan ráð­gjafa lista­manns­ins sem ver sig sjálfur. Þar segir hún: „Listin sjálf er fyrir rétti.”

Þess má geta að bæðið Bandalag íslenskra lista­manna og Samband íslenskra mynd­list­ar­manna hafa sent út ein­dregnar stuðn­ings­yfi­lýs­ingar við lista­mann­inn og verk hans. Hér má sjá yfir­lýs­ingu frá Sambandi íslenskra lista­manna til stuðn­ings lista­mann­inum. Og hér er að finna yfir­lýs­ingu Banda­lags íslenskra lista­manna.

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Stríðnipúkar ættu að fá listamannalaun. Góður hrekkur er gulls ígildi!
    1
  • Hlynur Helgason skrifaði
    Það er greinilegt að fyrst að Samherjji þurfti að leita til orðabóka um það að reyna að rökstyðja skoðun sína á að verk Odds væri ekki „list“ að enginn málsmetandi maður með þekkingu á myndlist hefur fengist til að færa rök fyrir því. Ég treysti því að þokkalega lögfræðilega menntaður enskur dómari sjái í gegn um slíka vitleysu.
    3
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    107 árum eftir að R. Mutt frumsýndi "Brunninn" álpast yfirlætislegt og sjálfumglatt valdið út í botnlausa keldu listanna, með hnefann reiddan, og eins og alltaf, verður það sér til skammar og háðungar.
    Svo er hitt að það er áhugavert að "enski bötlerinn" (hér í líki lögfræðinga) lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna þegar kemur af meintum óþrifum og bjarga þarf hagsmunum eða heiðri húsbænda sinna og beitir hinum óvönduðustu meðulum ef svo ber undir við hreinsunarstarfið, enda er ómakinu síðan lokað með feitum reikningi.
    Um slík atvik og fyrirbæri má lesa í áhugaverðri bók Olivers Bullough, sem kom út í fyrra og fjallar um hvernig Bretland varð þjónustumiðstöð fyrir auðjöfra, skattsvikara, þjófræði og glæpamenn.
    Veit ekki hvort hann Marcel Duchamp hefði litið upp frá skákinni.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár