Þessi grein birtist fyrir rúmlega 2 mánuðum.

Úlfaldaekill í Afríku eða svínahirðir í Kastilíu

Þetta var val­ið sem al-Mutamid múslimakóng­ur í Andal­ús­íu stóð frammi fyr­ir und­ir lok 11. ald­ar. Smá­borg­in Beja í Portúgal reyn­ist enn hafa haft furðu mik­il áhrif á mann­kyns­sög­una

Úlfaldaekill í Afríku eða svínahirðir í Kastilíu
Við lok fyrstu þúsaldar voru kristnir furstar á Pýreneaskaga byrjaðir að sporna hressilega við múslimaríkjunum sem þar höfðu verið frá því á 8. öld.

Í flækjusögu síðustu viku var þar komið sögu borgarinnar Beja í sunnanverðri Lusitaníu (nú Portúgal) að á 11. öld var borgin hluti af allvoldugu ríki múslimakonunganna í Išbīliya, eða Sevillu, eins og sú borg heitir núna.

Feðgar þrír af ætt Abbadída ríktu  hver á fætur öðrum yfir Išbīliya 10231095 og var sá þriðji, Mohammed al-Mutamid, fæddur í Beja. Hann var að ýmsu leyti mikilfengleg persóna, áhugasamur um vísindi og menningu og mikilsvirt ljóðskáld sjálfur, og uppáhaldskonan hans var raunar ljóðskáld líka, hún Itíma, þrælastúlka sem hófst til virðingar vegna hagmælsku sinnar.

En þótt al-Mutamid hefði metnað til að endurreisa veldi kalífanna dýrðlegu í Andalúsíu var herlið hans raunar ekki upp á marga fiska. Seint á valdatíma hans var hinn kristni Alfonso kóngur í Kastilíu orðinn honum yfirsterkari svo al-Mutamid varð að greiða honum skatt, sem var mikil niðurlæging fyrir einn helsta höfðingja múslima á Spáni. Al-Mutamid greip þá …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár