Hlutfall seldra rafmagnsbíla hefur hríðfallið frá og með áramótum. Undanfarin ár hefur Ísland ávallt verið á lista yfir þau ríki sem selja hæsta hlutfall rafmagnsbíla í heiminum. Stjórnmálamenn hafa vitnað í þessa lista um hversu vel landinu gengur að berjast gegn loftslagsbreytingum. Nýjar tölur frá samtökum bílaframleiðenda í Evrópu (ACEA) sýna nú að Ísland hefur fallið úr öðru sæti á lista yfir hlutfall seldra rafmagnsbíla af heildarsölu bifreiða, niður í þrettánda sæti í Evrópu.
Salan hefur minnkað töluvert eftir áramót, en þá voru lagðar ýmsar álögur á rafmagnsbíla, meðal annars kílómetragjald. Það breytir hins vegar ekki þeim kostum sem því fylgja fyrir almenning og umhverfið að skipta yfir í rafmagnsbíl. Hins vegar hefur verið á reiki hversu umhverfisvænt það er í raun og veru. Ítrekað hefur röngum upplýsingum verið dreift á samfélagsmiðlum, sem fjalla um hversu óumhverfisvænn, óáreiðanlegur og óþægilegur rafmagnsbíllinn sé. Heimildin fer hér yfir helstu kosti og galla …
Athugasemdir (3)