Það sem er satt og logið um rafmagnsbíla

Það sem er satt og logið um rafmagnsbíla

Deilt er um hversu umhverf­is­vænn, áreið­an­legur og þægi­legur raf­magns­bíll­inn sé. Hér er kafað ofan í málin, fjallað um hleðslu­kvíða og gefin góð ráð fyrir hleðsl­una.

Hlutfall seldra raf­magns­bíla hefur hríð­fallið frá og með ára­mótum. Und­an­farin ár hefur Ísland ávallt verið á lista yfir þau ríki sem selja hæsta hlut­fall raf­magns­bíla í heim­inum. Stjórn­mála­menn hafa vitnað í þessa lista um hversu vel land­inu gengur að berj­ast gegn lofts­lags­breyt­ingum. Nýjar tölur frá sam­tökum bíla­fram­leið­enda í Evrópu (ACEA) sýna nú að Ísland hefur fallið úr öðru sæti á lista yfir hlut­fall seldra raf­magns­bíla af heild­ar­sölu bif­reiða, niður í þrett­ánda sæti í Evrópu.

Salan hefur minnkað tölu­vert eftir ára­mót, en þá voru lagðar ýmsar álögur á raf­magns­bíla, meðal ann­ars kíló­metra­gjald. Það breytir hins vegar ekki þeim kostum sem því fylgja fyrir almenn­ing og umhverfið að skipta yfir í raf­magns­bíl. Hins vegar hefur verið á reiki hversu umhverf­is­vænt það er í raun og veru. Ítrekað hefur röngum upp­lýs­ingum verið dreift á sam­fé­lags­miðlum, sem fjalla um hversu óum­hverf­is­vænn, óáreið­an­legur og óþægi­legur raf­magns­bíll­inn sé. Heim­ildin fer hér yfir helstu kosti …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KÞM
    Kristín Þ. Magnúsdóttir skrifaði
    Vildi að rekinn væri viðlíka áróður fyrir almenningssamgöngum sem er tvímælalaust umhverfisvænasti samgöngukostur sem til er, fyrir utan að hjóla og ganga.
    4
  • GHG
    Gunnar Hjalti Guðmundssson skrifaði
    Rafbílar hafa kosti og galla en upplýsingum seljanda eru sjaldan góður grundvöllur til að ræða kosti og galla. Yfirborðsleg og áróðurskennd umfjöllun!
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár