Þessi grein birtist fyrir meira en mánuði.

Vel lifaður útikamar fær nýjan tilgang

Þrí­hyrnd­ur útikam­ar á Lóns­ör­æf­um, sem hafði misst vægi sitt með til­komu vatns­kló­setta, skipti á nokkr­um dög­um um hlut­verk og varð að Galle­rí Múla­skít. Fyrsta sýn­ing­in var á veg­um hol­lenskr­ar konu sem mál­aði vatns­lita­mynd­ir af mögn­uðu um­hverf­inu. Mynd­irn­ar ruku út sam­dæg­urs þar til eng­in var eft­ir.

Þegar Friðgeir Jóhannes Kristjánsson, landvörður á Lónsöræfum, fór að gá að gamla kamrinum á svæðinu snemma í júlímánuði blasti við honum undarleg sjón. Tvær lappir stóðu út úr þríhyrndum kofanum sem hýsir kamarinn. Inni var hollensk kona, ekki að gera þarfir sínar heldur að mála útsýnið frá kamrinum. 

Þetta var vætusamur dagur og konan, Kim Buisman, hafði leitað skjóls inni á kamrinum til þess að skapa þar list, en hún er myndlistarmaður – rétt eins og Friðgeir sjálfur. Þegar Friðgeir, sem hefur reynslu af því að standa í óhefðbundnum gallerírekstri – m.a. í stöðvarhúsi nálægt Langavatni í Reykjahverfi, var lagstur á koddann um kvöldið skaut niður í kollinn á honum hugmynd: „Væri ekki bara sniðugt að reyna að gera eitthvað úr þessu, henda í gallerí og lappa upp á kamarinn?“ 

Nýir tímarKim og Friðgeir við Gallerí Múlaskít.

Nokkrum dögum síðar opnaði svo fyrsta sýningin á gamla kamrinum …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár