Mynd: Golli

Vel lifaður útikamar fær nýjan tilgang

Þrí­hyrndur úti­kamar á Lónsör­æfum, sem hafði misst vægi sitt með til­komu vatns­kló­setta, skipti á nokkrum dögum um hlut­verk og varð að Gallerí Múlaskít. Fyrsta sýn­ingin var á vegum hol­lenskrar konu sem mál­aði vatns­lita­myndir af mögn­uðu umhverf­inu. Mynd­irnar ruku út sam­dæg­urs þar til engin var eftir.

Þegar Friðgeir Jóhannes Krist­jáns­son, land­vörður á Lónsör­æfum, fór að gá að gamla kamr­inum á svæð­inu snemma í júlí­mán­uði blasti við honum und­ar­leg sjón. Tvær lappir stóðu út úr þrí­hyrndum kof­anum sem hýsir kamar­inn. Inni var hol­lensk kona, ekki að gera þarfir sínar heldur að mála útsýnið frá kamr­inum. 

Þetta var vætu­samur dagur og konan, Kim Buisman, hafði leitað skjóls inni á kamr­inum til þess að skapa þar list, en hún er mynd­list­ar­maður – rétt eins og Friðgeir sjálfur. Þegar Friðgeir, sem hefur reynslu af því að standa í óhefð­bundnum gall­er­í­rekstri – m.a. í stöðv­ar­húsi nálægt Langa­vatni í Reykja­hverfi, var lagstur á kodd­ann um kvöldið skaut niður í koll­inn á honum hug­mynd: „Væri ekki bara snið­ugt að reyna að gera eitt­hvað úr þessu, henda í gall­erí og lappa upp á kamar­inn?“ 

Nýir tímarKim og Friðgeir við Gallerí Múlaskít.

…

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár