Alvarlegt feilspor í ballettinum

Ný úttekt á kennslu­háttum og framkoma kennara við Ballett­skóla konunglega leik­hússins í Kaupmanna­höfn gagnvart nemendum er áfellis­dómur yfir stjórn­endum skólans og leik­hússins. Úttektin var gerð í kjölfar umfjöllunar eins af dönsku dagblöðunum og vakti mikla athygli.

Ballett
Ballett Ball­ett­skóli kon­ung­lega leik­húss­ins í Kaup­manna­höfn og leik­húsið hafa alla tíð verið nátengd og skól­inn hefur alla tíð haft aðsetur í húsa­kynnum leik­húss­ins við Kóngsins Nýjatorg. Mynd: Facebook/Camilla Winther
Hlustaðu 06:57 · Eitt og annað

Ballett­skóli konunglega leik­hússins í Kaupmanna­höfn var stofnaður árið 1771, sama ár og Konunglegi ballettinn var formlega stofnaður. Ballett­flokkurinn hafði þó starfað frá árinu 1748 en það ár hófst starfsemi Konunglega leik­hússins við Kóngsins Nýjatorg. Ballettinn er hátt skrifaður í ballett­heiminum og nýtur þar bæði virðingar og álits. Margir þekktir dansarar hafa gegnum árin stigið sín fyrstu spor í Ballett­skólanum og síðan fengið fast starf við Konunglega ballettinn, þekktastur í þeim hópi er vafalítið August Bornonville (1805 – 1879).

Skólinn og leikhúsið hafa alla tíð verið nátengd og skólinn hefur alla tíð haft aðsetur í húsa­kynnum leik­hússins við Kóngsins Nýjatorg. Nemendur eru teknir inn í Ballett­skólann að undan­gengnum umfangs­miklum inntöku­prófum. Skólinn er með bekkja­kerfi, frá 0. – 9. bekkjar ásamt þriggja ára reynslu­tímabili. Frá og með öðru ári getur nemendum verið vísað úr skólanum standist þeir ekki þær kröfur sem gerðar eru til þeirra.

Ballett­skólinn er jafnframt grunn­skóli, sá hluti er kallaður Læseskolen, um langt árabil hefur N. Zahles skólinn í Kaupmanna­höfn annast hina hefð­bundnu grunn­skóla­kennslu.  Skólinn er rekinn með fjárstyrk frá ríkinu auk skóla­gjalda nemenda. Danska náms­eftirlits­stofnunin (Styrelsen for Undervisning og Kvalitet) hefur eftirlit með bóknáminu sem fram fer í skólanum, en ekkert eftirlit er með ballett­kennslunni. 

BallettBall­ett­skóli kon­ung­lega leik­húss­ins í Kaup­manna­höfn og leik­húsið hafa alla tíð verið nátengd og skól­inn hefur alla tíð haft aðsetur í húsa­kynnum leik­húss­ins við Kóngsins Nýjatorg.

Kusk á glansmyndina

Haustið 2023 birti dagblaðið Politiken langan greina­flokk um Ballett­skóla Konunglega leik­hússins, sem blaðamenn höfðu unnið að um langt skeið. Í greina­flokknum birtust viðtöl við 30 fyrr­verandi nemendur ballett­skólans en samtals ræddu blaða­mennirnir við 48 einstaklinga, nemendur og foreldra. Rétt er að geta þess að umfjöllunin sneri eingöngu að ballett­skólanum en ekki hinu hefð­bundna grunn­skólanámi í Læseskolen. Greina­flokkur Politiken vakti mikla athygli og um hana var fjallað í nær öllum dönskum fjöl­miðlum. Ballett­skólinn hefur iðulega verið sveipaður einskonar dýrðar­ljóma en yfir þessari umfjöllun var enginn dýðarljómi, heldur dökkt ský.

Líkamleg og andleg vanlíðan

Eins og áður sagði byggði umfjöllun Politken á viðtölum við fjölmarga fyrr­verandi nemendur sem voru í skólanum á árunum 2010 – 2020 og einnig foreldra og aðstand­endur nemenda.

Meðal þeirra sem rætt var við er Klara Maj Stockmarr, hún var í skólanum frá 11 til 14 ára aldurs, hún er 24 ára í dag. Hún lýsti því í viðtalinu að sér og öðrum, nemendum allt niður í 9 ára aldur hefði sífellt verið skipað að léttast, þótt allir í hópnum hafi verið grannir, sumir allt of grannir. „Ég fór að æfa sífellt meira, hljóp, hjólaði og synti, allt til að geta uppfyllt kröfur kennaranna og skóla­stjórans,“ sagði Klara Maj Stockmarr. 17 þeirra fyrr­verandi nemenda, meir­hlutinn stúlkur, sem Politiken ræddi við greindu frá því að þeir hefðu, meðan á náminu stóð og allar götur síðan glímt við átröskun, þar á meðal áðurnefnd Klara Maj Stockmarr. Veran í skólanum hefur einnig leitt til þess að margir úr hópnum hafa þurft að leita til geðlækna til að ná tökum á lífi sínu, eins og Klara Maj Stockmarr komst að orði.

Drottn­ing fylgist með ball­ett­dönsurumMargir þekktir dans­arar hafa gegnum árin stigið sín fyrstu spor í Ball­ett­skól­anum og síðan fengið fast starf við Kon­ung­lega ball­ett­inn.

Margar stúlknanna og sumir drengjanna (þeir er ætíð miklu færri í skólanum) lýstu því hvernig þau hefðu nánast svelt sig heilu og hálfu dagana til að uppfylla kröfur kennaranna. Og í mörgum tilvikum dugði það ekki til og þeim neitað um að halda áfram náminu. Ballett­meistarinn, yfirmaður Ballett­skóla Konunglega leik­hússins fylgist grannt með nemendum á efri stigum skólans og þeim sem skara fram úr er gjarna boðin staða í ballett­flokknum að námi loknu.

Kvartanir og ábendingar báru engan árangur

Mörgum foreldrum blöskraði sú breyting sem orðið hafði á börnunum þegar þau komu heim í leyfi. Og sömuleiðis lýsingum þeirra á framkomu kennaranna og stjórn­enda skólans. Margir foreldrar höfðu samband, ýmist símleiðis eða með bréfa­skrifum, við skólann en fengu ætíð lítil eða engin svör. Margir foreldrar hikuðu einnig við að kvarta. „Ég var viss um að ef ég kvartaði myndi það bitna á dóttur minni,“ sagði móðir sem Politiken ræddi við.

Stjórn Konunglega leikhússins fyrirskipaði rannsókn

Í kjölfar umfjöllunnar Politiken síðastliðið haust, og í kjölfarið fleiri fjölmiðla, beindi Kasper Holten leik­hússtjóri Konunglega leik­hússins, og æðsti yfirmaður ballett­skólans, því til stjórnar leik­hússins, að fram færi rannsókn á kennslu­háttum ballett­skólans og starfsemi hans. Stjórnin fól í fram­haldinu lögfræði­stofunni Horten að annast rann­sóknina og skila skýrslu að rannsókn lokinni. Lögfræði­stofan fékk skipun um að vinna hratt og skýrslan barst stjórn leik­hússins fyrir skömmu.

Kolsvört skýrsla

Í stuttu máli stað­festir rannsókn lögfræði­stofunnar Horten allt sem fram kom í umfjöllun Politiken og er áfellis­dómur yfir skólanum og stjórn­endum hans. Í skýrslunni eru jafnframt settar fram 40 ábendingar um úrbætur, 8 þeirra eru frá lögfræði­stofunni sjálfri en hinar 32 eru frá sálfræðingum og öðrum sérfræðingum. Lagðar eru til gagngerar breytingar á starfsemi skólans. Lars Barfoed stjórnar­formaður Konunglega leik­hússins (fyrr­verandi þingmaður og ráðherra) sagði í viðtali að þessari skýrslu yrði ekki stungið undir stól og nú þegar yrði hafist handa um úrbætur samkvæmt þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni. Lars Barfoed, sem tók við stjórnar­formennskunni haustið 2023, sagði jafnframt að leitað yrði aðstoðar færustu sérfræðinga, eins og hann komst að orði.

Kasper Holten leik­hússtjóri Konunglega leik­hússins  (síðan 2018) og Nikolaj Hübbe stjórn­andi ballettsins (frá árinu 2008) hafa báðir beðið fyrr­verandi og núverandi nemendur ballett­skólans afsökunar á öllu því sem miður hefur farið. Núverandi ráðningar­tímabil Nikolaj Hübbe rennur út árið 2026 og fyrir nokkrum mánuðum síðan tilkynnti hann að hann myndi ekki sækjast eftir endur­ráðningu.

Þeir Kasper Holten og Nikolaj Hübbe hafa báðir fengið áminningu frá stjórn leik­hússins.

ÁminningKasper Holten leik­hús­stjóri Kon­ung­lega leik­húss­ins ásamt Morten Kirkskov leik­hús­stjóra, Nikolaj Hübbe stjórn­anda ball­etts­ins og John Fulljames óperu­stjóra. Kasper og Nikolaj hafa báðir fengið áminn­ingu frá stjórn leik­húss­ins vegna nýrrar úttektar á kennslu­háttum og fram­komu kenn­ara við Ball­ett­skóla kon­ung­lega leik­húss­ins í Kaup­manna­höfn gagn­vart nem­endum.
Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GRR
    Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Í myndatexta er ágæt regla að greina frá nöfnum einstaklinga á myndinni í sömu röð og þeir birtast þar.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eitt og annað

8 mín.
Eitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski herinn hefur árum saman mátt búa við niður­skurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mannskap. Slæmur aðbúnaður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækjast eftir hermennsk­unni. Nýlega varð danski flotinn að aflýsa leiðangri til Grænlands vegna þess að ekki var hægt að manna leiðangurs­skipið. Slíkar fréttir skaða ímynd flotans og geta verið vatn á myllu Bandaríkja­forseta.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár