Hvað gera Ásgeir og félagar á morgun?

Hvað gera Ásgeir og félagar á morgun?

Tveir valda­mestu ráð­herrar lands­ins telja Seðla­bank­ann geta lækkað stýri­vexti á morgun en grein­ing­ar­að­ilar eru nokkuð vissir um að þeir hald­ist óbreyttir. Ef það ger­ist munu stýri­vextir ná því að vera 9,25 pró­sent í heilt ár. Afleið­ing vaxta­hækk­un­ar­ferl­is­ins er meðal ann­ars sú að vaxta­gjöld heim­ila hafa auk­ist um 80 pró­sent á tveimur árum.

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands voru hækk­aðir í 9,25 pró­sent í ágúst í fyrra. Þeir höfðu þá ekki verið svo háir síðan síðla árs 2009, eða í næstum 14 ár. Verði þeir ekki lækk­aðir á morgun, þegar pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans til­kynnir um vaxta­á­kvörðun sína, þá munu þeir hafa hald­ist í þeim hæðum í heilt ár, enda næstu vaxta­á­kvörð­un­ar­dagur ekki fyrr en 21. ágúst næst­kom­andi. 

Flestir grein­ing­ar­að­ilar eru ekki von­góðir um vaxta­lækkun, og spá því að vext­irnir verði áfram óbreyttir. Sú breyt­ing hefur orðið á pen­inga­stefnu­nefnd­inni frá síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi að eina „dúfan“ í henni, en það heiti er notað yfir þá sem vilja beita mild­ari með­ölum til að takast á við efna­hags­legar aðstæður, er nú horf­inn til ann­arra starfa. Það var Gunnar Jak­obs­son, einn vara­seðla­banka­stjóra bank­ans, en hann hefur talað reglu­lega fyrir því að að lækka vexti síð­ustu mán­uði. Í hans stað hefur tíma­bundið sest Arnór Sig­hvats­son, fyrr­ver­andi aðal­hag­fræð­ingur og vara­seðla­banka­stjóri í Seðla­bank­anum. 

Tveir …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Tökum upp evru og segjum seðlabankastjóra upp ?
    Þurfum hann ekki lengur !
    0
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Þess má einnig geta að fjöldi öryrkja er með óverðtryggð fastteignalán með tímabundið föstum vöxtum sem losna á næstu mánuðum. Þá munu afborganir þeirra af lánum tvöfaldast eða meira vegna hækkana á stýrivöxtum. Þessi hópur er í einstaklega slæmri stöðu því að þau geta ekki aukið tekjur sínar vegna skerðinga frá fyrstu krónu. Ef þau taka að sér hlutastarf eða verkefni til að auka tekjur sínar hirða skerðingar ríkisins 65 aura af hverri krónu til baka af framfærslu þeirra og oft meira en það. Þeirra á meðal er fjöldi einhleypra foreldra á sem þurfa að reiða sig á örorkulífeyrir. Það er undarlegt en það er engu líkara en að stjórnvöld hafi engan áhuga á að grípa inn í þessa vá. Það eru ranghugmyndir og fordómar rikjandi í samfélaginu um fatlað fólk. Staðreyndin er sú að aðeins um 3% fatlaðs fólks hefur verið fatlað frá fæðingu og um 1 % fatlaðs fólks fæðist með þroskaskerðingu. Um 97% fatlaðs fólks fatlast síðar á ævinni m.a. vegna slysa, stríðsátaka, sjúkdóma, áfalla, eða of mikils vinnuálags. Sá hópur samanstendur af fólki með allskonar menntun, háskólamenntun, tæknimenntun eða enga menntun. Það á að baki allskonar starfsreynslu, eiga börn, eru með allskonar skuldbindingar svo sem óverðtryggð eða verðtryggð fasteignalán Allir geta fatlast. Slys gera ekki boð á undan sér. Enginn veit að morgni dags hvernig dagurinn endar. Ein af rikjandi ranghugmyndum í samfélaginu er að allir í þessum hóp sé eins og 1% hópurinn, það er með þroskaskerðingu. Það er öðru nær. Svipað hlutfall þeirra sem eru með fasteignalán í þessum hópi eru með óverðtryggð lán og á almennum markaði á meðal ófatlaðs fólks.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Spítalinn er fræðilega fjárhagslega vel staddur en því miður eru sjúklingarnir allir dauðir. Hagfræðilega aðferðafræðin hjá Seðlo
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár