Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna

Mikið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þegar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum er staðan skást í Kópavogi og Reykja­vík en versnar hrað­ast í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi, þar sem veltufé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörður er eina sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, umfram það sem æski­legt er. Heim­ildin rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.

Langstærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins er Reykja­vík­ur­borg. Íbúar hennar voru rúm­lega 135 þús­und í byrjun þessa árs, eða tæp­lega 30 þús­und fleiri en íbúar allra ann­arra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­an­lagt. Stöðu­gildi hjá A-hluta hennar, þess hluta rekstr­ar­ins sem greitt er fyrir með skattfé, voru 8.575 að með­al­tali á síð­asta ári. Það eru næstum tvisvar sinnum fleiri en allir íbúar nágranna­sveit­ar­fé­lags­ins Sel­tjarn­ar­ness. 

Samstæða Reykja­víkur, sem sam­anstendur af áður­nefndum A-hluta og þeim fyr­ir­tækjum sem borgin á hlut í, svoköll­uðum B-hluta, velti næstum 252 millj­örðum króna á árinu 2023. Þar af var meg­in­þorri þeirrar veltu í A-hlut­anum, eða rúm­lega 176 millj­arðar króna. Reykja­vík er, sam­an­dregið, ein stærsta fyr­ir­tækja­sam­stæða lands­ins.

Þau fyr­ir­tæki í eigu borg­ar­innar sem eru verð­mæt­ust eru Orku­veita Reykja­víkur, sem metur eignir sínar á 259 millj­arða króna umfram skuldir, ann­ars vegar og Félags­bú­staðir, sem eiga 3.110 íbúðir og eigið fé umfram skuldir upp á 85 millj­arða króna, hins vegar. Enginn …

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SJ
    Svanfríður Jónasdóttir skrifaði
    Athyglisvert hve áróður um fjármál borgarinnar hefur náð miklu flugi, byggt á takmörkuðum upplýsingum
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár