OK til bjargar Coop

Danska versl­ana­sam­steypan Coop hefur um langa hríð glímt við rekstr­ar­erf­ið­leika. Margs konar hag­ræð­ingar hafa ekki dugað til að koma rekstr­inum í við­un­andi horf. Nú hefur orku­fyr­ir­tækið OK ákveðið að koma Coop til bjargar og leggur til veru­legt fjár­magn.

Á all­mörgum und­an­förnum árum hafa af og til birst í dönskum fjöl­miðlum fréttir af erf­ið­leikum í rekstri Coop. Ástæð­urnar eru margar, meðal ann­ars þær að Coop hefur um ára­tuga skeið rekið versl­anir í smá­bæjum og byggð­ar­kjörnum víða um land sem hafa ekki getað keppt við stærri versl­anir, sem bjóða lægra verð. Bættar sam­göngur og aukin bíla­eign valda því að við­skipta­vin­irnir setja ekki fyrir sig að keyra drjúgan spöl til að kom­ast í stærri versl­anir þar sem úrvalið er meira en hjá „kaup­mann­inum á horn­inu“ og verðið hag­stæð­ara. Sam­keppnin er hörð enda versl­anir í land­inu allt of margar miðað við íbúa­fjöld­ann að mati sér­fræð­inga í versl­un­ar­rekstri. 

Rekstur Salling group, sem rekur fjöl­margar versl­anir undir ýmsum nöfnum, m.a. Netto, Føtex og Bilka, hefur gengið vel og auk þess hafa komið til sög­unnar ný fyr­ir­tæki sem róa á sömu mið ef svo mætti að orði kom­ast. Þar má nefna Rema 1000 sem rekur nú um það bil 400 versl­anir og þýska fyr­ir­tækið Lidl með um það bil 160 versl­anir. 

Coop-sam­steypan rekur sam­tals tæp­lega eitt þús­und versl­anir og starfs­menn eru um það bil 40 þús­und.

Löng saga

Í árs­byrjun 1896 urðu til, undir for­ystu nokk­urra kaup­manna á Jótlandi, sam­tök sem fengu nafnið „Fæl­les­for­en­ingen for Danmarks Brugs­for­en­inger“, sem allar götur síðan hefur gengið undir skamm­stöf­un­inni FDB.

Jósku kaup­menn­irnir höfðu um nokk­urra ára skeið sam­ein­ast um kaup á ýmsum vöru­teg­undum. Ári eftir stofn­un­ina komu fyrstu vör­urnar sem fram­leiddar voru undir merkjum FDB á mark­að­inn. Það var kaffi, hét ein­fald­lega FDB kaffi, fyrstu árin voru tvær teg­undir í boði en þeim fjölg­aði fljót­lega og kaffið fékk annað heiti, Cirkel. Þetta kaffi er enn á mark­aðnum og aug­lýs­ingaplakat fyrir kaffið er eitt þekktasta sinnar gerðar í Danmörku. 

Aug­lýs­ingin frægaCirkel kaffe er enn fram­leitt og hið gamla aug­lýs­inga­spjald er fyrir löngu orðið klassík.

Á næstu árum og ára­tugum voru fjöl­margar vörur fram­leiddar undir merkjum FDB, stærstur hluti fram­leiddur í verk­smiðjum sam­tak­anna í Viby hverf­inu í Árósum, verk­smiðju­svæðið var 55 þús­und fer­metrar. Eftir miðja síð­ustu öld fór smám saman að draga úr þess­ari fram­leiðslu og henni var að mestu hætt fyrir síð­ustu alda­mót. Sumar vör­urnar, til dæmis kaffið, eru þó enn fram­leiddar.

Neytendablað og húsgögn

Fyrir rúmu ári skrif­aði höf­undur þessa pistils grein í Heim­ild­ina um sögu Coop og þau dökku ský sem þá voru að hrann­ast upp í rekstr­inum. Þar var meðal ann­ars sagt frá tíma­riti sam­tak­anna og fram­leiðslu hús­gagna og þessi umfjöllun er end­ur­birt hér.

Fyrir fólkiðFDB-hús­gögnin voru mjög vin­sæl en halla fór undan fæti þegar versl­anir á borð við IKEA komu á mark­að­inn og buðu betur.

Árið 1928 hóf FDB útgáfu tíma­rits um neyt­enda­mál. Það hét Brugs­for­en­ings-Bladet en nafn­inu var síðar breytt og heitir nú Samvirke. Í blað­inu er fjallað um neyt­enda­mál á breiðum grunni og Samvirke er, sam­kvæmt könn­unum Gallup, eitt mest lesna og trú­verð­ug­asta tíma­rit lands­ins.

Árið 1940 var hinn þekkti arki­tekt Børge Mogensen ráð­inn til að veita for­stöðu teikni­stofu sem FDB ákvað að setja á lagg­irnar. Þar átti að hanna hús­gögn handa dönskum fjöl­skyldum, hús­gögnin áttu að vera ein­föld og á við­ráð­an­legu verði en jafn­framt sterk og end­ing­ar­góð. Fram­leiðsla hófst árið 1945 og hús­gögnin nutu strax mik­illa vin­sælda. Um sama leyti og sala hús­gagn­anna hófst lét FDB gera 25 mín­útna langa aug­lýs­inga­mynd sem sýnd var í kvik­mynda­húsum, hún hét „En lys og lykk­elig fremtid“.

Aðal­per­són­urnar eru ungt par sem er að byrja búskap en er í vand­ræðum með að velja hús­gögn í íbúð­ina. Þegar unga fólkið sér FDB hús­gögnin er vand­inn leystur og parið er sann­fært um að þess bíði „björt og gæfu­rík fram­tíð“. Børge Mogensen lét af störfum yfir­manns teikni­stof­unnar árið 1950 en í kjöl­far hans komu aðrir þekktir danskir hús­gagna­hönn­uðir, þar á meðal Poul Volther. 

Aug­lýs­ing FDB

Teikni­stof­unni var lokað árið 1968 en hús­gögnin voru fram­leidd til árs­ins 1980. Þá voru breyttir tímar, úrval ódýrra hús­gagna hafði auk­ist til muna, ekki síst eftir að IKEA opn­aði versl­anir í Danmörku, þá fyrstu árið 1969.

Árið 2013 ákvað FDB að setja á mark­að­inn nokkur þeirra hús­gagna sem áður voru fram­leidd á verk­stæðum fyr­ir­tæk­is­ins. Og það var eins og við mann­inn mælt, hús­gögnin rokseld­ust og nú rekur FDB fleiri en 10 versl­anir í Danmörku og hús­gögnin auk þess seld í mörgum öðrum hús­gagna­versl­unum. Auk hús­gagna „gömlu meist­ar­anna“ fram­leiðir FDB nú líka hús­gögn yngri hönn­uða.

Þess má geta að fyrir fáum árum kom út bók um sögu FDB-hús­gagn­anna, hún ber sama nafn og aug­lýs­inga­myndin frá 1945, „En lys og lykk­elig fremtid“.

Blikur á lofti

Eins og nefnt var í upp­hafi þessa pistils hefur Coop um ára­bil glímt við erf­ið­leika í rekstr­inum. Í byrjun febr­úar á síð­asta ári var til­kynnt að 17 af 65 Irmu-versl­unum yrði lokað en hinar 48 fram­vegis reknar undir öðrum nöfnum Coop en Irmu-versl­an­irnar keypti Coop árið 1982. Skýr­ingin á þess­ari breyt­ingu var sögð sú að Irma væri of lítil rekstr­ar­ein­ing.

KjörbúðVersl­anir sem nú eru kall­aðar 365discount hétu áður Fakta. Þetta er ekki eina nafna­breyt­ingin sem farið hefur verið í.

Þá lá einnig fyrir að versl­anir sem reknar voru undir nafn­inu Fakta hyrfu af sjón­ar­svið­inu, í stað­inn kæmu versl­anir sem nefnd­ust 365discount. Ætlunin var að Coop ræki fram­vegis þrjár versl­ana­keðjur, Kvickly, Super­Brug­sen og 365discount, Daglig­Brug­sen-versl­an­irnar myndu hverfa. Um líkt leyti var greint frá því að Coop hefði selt hús­eignir víða um land fyrir um einn millj­arð danskra króna og í lok mars á síð­asta ári var svo greint frá því að Coop hefði selt eignir og land­spildu í Albertslund, skammt frá Kaup­manna­höfn, fyrir einn millj­arð danskra króna.

Nafnabreytingasirkusinn

Á síð­asta ári kom í ljós að fjár­hags­vand­ræði Coop-sam­stæð­unnar væru meiri og alvar­legri en flestum var kunn­ugt um. Danir höfðu varla áttað sig á „nýju“ nöfn­unum á versl­unum þegar til­kynnt var um enn eina breyt­ing­una. Nú skyldu allar versl­anir sam­stæð­unnar bera nöfnin Coop. Hin gam­al­grónu nöfn Kvickly og Super­Brug­sen áttu að hverfa. Danirnir klór­uðu sér í koll­inum yfir þessum breyt­ingum, „ný og betri rekstr­ar­á­ætlun“ sagði for­stjór­inn Kræn Østergård Nielsen. Hafi ein­hverjir gert sér í hug­ar­lund að nú væri þessum sífelldu nafna­breyt­ingum lokið reynd­ist það ekki alveg svo.

OK kemur til sögunnar

Hinn 12. apríl síð­ast­lið­inn bár­ust nýjar fréttir úr höf­uð­stöðvum Coop. Danskir fjöl­miðlar köll­uðu til­kynn­ing­una stór­frétt. Í fyrsta lagi, og það sem mesta athygli vakti, var að orku­sölu­fyr­ir­tækið OK myndi koma með 2 millj­arða danskra króna (40 millj­arða íslenska) inn í rekst­ur­inn. Í öðru lagi yrði ekk­ert úr „stóru nafna­breyt­ing­unni“, eins það var kallað, nöfnin Kvickly og Super­Brug­sen, ásamt gamla Brugsen-nafn­inu yrðu áfram á sínum stað. Og í þriðja lagi að skipt yrði um for­stjóra. Mesta athygli vakti fréttin um að OK væri að ganga til liðs við Coop.

OKFélagið OK rekur m.a. bens­ín­stöðvar. Það á nú stóran hlut í Coop-sam­steyp­unni og mun fá að ráða miklu um fram­tíð versl­ana sem undir hana heyra.

Í til­kynn­ing­unni kom fram að OK fengi jafn­framt mikil völd varð­andi alla ákvarð­ana­töku hjá Coop, bestemm­ende ind­flydelse, eins og það var orðað. Þegar for­svars­menn OK voru spurðir hvers vegna fyr­ir­tækið hefði tekið ákvörðun um að koma til liðs við Coop var svar for­stjór­ans ein­falt: „OK fyr­ir­tækið stendur vel, við höfum lengi verið í sam­vinnu við Coop varð­andi stað­setn­ingu bens­ín­stöðva okkar og viljum gjarnan styrkja þessa sam­vinnu.“ 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár