Vinstri græn ekki lengur með minnst fylgi flokka á Alþingi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með 18 pró­sent fylgi og hefur ekki rofið 20 pró­senta-múr­inn í heilt ár. Sam­fylk­ingin dalar milli kann­ana en er samt stærri en Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn til sam­ans.

Vinstri græn ekki lengur með minnst fylgi flokka á Alþingi
Lítið traust Traust gagn­vart rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hefur aldrei mælst minna. Sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna sem að henni standa er um þriðj­ungur, sem er langt frá því að duga til að stjórnin haldi. Mynd: Golli

Fylgi Vinstri grænna mælist nú 6,7 pró­sent í nýrri könnun Maskínu sem gerð varð í mars­mán­uði. Það er mesta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins síðan í júlí í fyrra, þegar fylgið mæld­ist átta pró­sent. Alls bæta Vinstri græn við sig 0,8 pró­sentu­stigi frá því í síð­ustu könnun. Lægst fór fylgi Vinstri grænna, flokks for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, í 5,6 pró­sent hjá Maskínu í des­em­ber. Flokk­ur­inn hefur mæld­ist með undir fimm pró­sent fylgi hjá Gallup í febr­úar sem hefði þýtt að hann félli af þingi. Vinstri græn fengu 12,7 pró­sent atkvæða í kosn­ingum 2021.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig 0,9 pró­sentu­stigi. Fylgi hans mælist nú 9,4 pró­sent, sem er ansi langt frá þeim 17,4 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Þriðji stjórn­ar­flokk­ur­inn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, dalar lít­il­lega milli kann­ana og mælist nú með 18 pró­sent fylgi. Heilt ár er síðan að flokk­ur­inn mæld­ist með yfir 20 pró­sent fylgi í könn­unum Maskínu.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 34,1 pró­sent, en þeir fengu 54,4 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. Sam­an­lagða fylgið hefur verið meira og minna á þessu slóðum síð­ustu mán­uði. Samkvæmt þessu myndi rík­is­stjórnin kol­falla ef kosið yrði í dag.

Samfylkingin áfram stærst en dalar

Sam­fylk­ingin er sá flokkur sem tapar mestu milli kann­ana, eða 1,6 pró­sentu­stigi, en mælist samt sem áður með 25,6 pró­sent fylgi. Það er lang­mesta fylgi allra flokka og Sam­fylk­ingin hefur mælst stærsti flokkur lands­ins í könn­unum Maskínu síðan í des­em­ber 2022. Fylgið er enn meira en sam­an­lagt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna. 

Mið­flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast þriðji stærsti flokkur lands­ins und­an­farið og heldur þeirri stöðu með 11,9 pró­sent fylgi. Það er lít­il­lega meira en hann mæld­ist með í febr­úar. Viðreisn hress­ist líka aðeins milli kann­ana og nýtur nú stuðn­ings 9,7 pró­sent kjós­enda. Sömu sögu er að segja af Pírötum sem mæl­ast með 9,5 pró­sent fylgi.  

Flokkur fólks­ins lækkar milli kann­ana og er nú sá flokkur sem á full­trúa á þingi sem mælist með minnst fylgi, eða 5,7 pró­sent. Fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands mælist svo 3,5 pró­sent. 

Aldrei meiri óánægja með stjórnina

Maskína kann­aði einnig ánægju með störf rík­is­stjórn­ar­innar, sem mælist nú minni en nokkru sinni áður. Einungis 14,8 pró­sent segj­ast vera ánægðir með hana á meðan að 57,5 pró­sent segj­ast vera óánægð. 

Líkt og búast mátti við er óánægjan almenn á meðal kjós­enda stjórn­ar­and­stöðu­flokka, en 66 til 93 pró­sent þeirra eru óánægðir með störf rík­is­stjórn­ar­innar. 

Athygli vekur hins vegar að tölu­verður munur er á milli kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna þegar kemur að ánægju með störf stjórn­ar­innar. Helm­ingur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins er ánægður með rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur en 15 pró­sent óánægður. Alls segja 37 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar vera ánægð með störf hennar en 34 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna. Þá er fjórð­ungur kjós­enda Fram­sóknar óánægður og fimmt­ungur kjós­enda Vinstri grænna.

Kjósa
63
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár