Alvotech tapaði 76 milljörðum en borgaði forstjóranum 209 milljónir í laun

Alvotech tapaði 76 milljörðum en borgaði forstjóranum 209 milljónir í laun

Verð­mætasta félagið í íslensku Kaup­höll­inni hefur sam­tals tapað næstum 150 millj­örðum króna á tveimur árum og átti lítið laust fé um síð­ustu ára­mót. For­stjóri þess, Róbert Wessman, fékk 17,4 millj­ónir króna að með­al­tali í mán­að­ar­laun á árinu 2023.


Alvotech
tap­aði 551,7 millj­ónum dala, 76,1 millj­arði króna, í fyrra ef miðað er við með­al­gengi dals á árinu 2023. Félagið tap­aði 513,6 millj­ónum dala, eða 73,3 millj­örðum króna á með­al­gengi árs­ins 2022, ári áður og hefur því sam­tals tapað vel yfir einum millj­arði dala á tveimur árum. Það gerir sam­tals 149,4 millj­arða tap á tveimur árum.

Til sam­an­burðar var halli á rekstri rík­is­sjóðs í fyrra 54 millj­arðar króna. Það þýðir að tap Alvotech á tveimur árum slagar upp í að vera þre­föld sú upp­hæð, og bara í fyrra tap­aði félagið 22 millj­örðum krónum meira en íslenska ríkið á krefj­andi ári. 

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Alvotech sem birtur var í kvöld. Þar má einnig finna upp­lýs­ingar um lausa­fjár­stöðu Alvotech, en félagið átti ein­ungis 11,2 millj­ónir dala í lausu fé, um 1,5 millj­arða króna, og 26,2 millj­ónir dala, um 3,6 millj­arða króna, í bundnu fé um síð­ustu ára­mót. Miðað við …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Andrésson skrifaði
    Er ekki líklegt sð Teva yfirtaki Alvotech um leið og sér til lands á Bandaríkjamarkaði, sbr. Actavis?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár