Kynþáttahatur og afmennskun í Söngvakeppni

Þátttaka Bashars Murad í Söngvakeppni sjón­varps­ins hratt af stað mik­illi umræðu í sam­fé­lag­inu sem spegl­aði að mörgu leyti þá miklu skautun í við­horfum gagn­vart inn­flytj­endum og flótta­fólki á Íslandi í dag. Kristín Lofts­dóttir, pró­fessor í mann­fræði við Háskóla Íslands, segir að þær fjöl­mörgu for­dóma­fullu athuga­semdir sem birt­ust víða á sam­fé­lags­miðlum sýni að kyn­þátta­for­dómar þrí­fist enn á Íslandi.

Kynþáttahatur og afmennskun í Söngvakeppni
Þátttaka Bashars vakti hörð við­brögð meðal margra en gagn­rýnin byggði gjarnan á þjóð­erni og menn­ing­ar­legum bak­grunn hans Mynd: Golli

Geitarið­ill að góla, hand­klæða­haus, rusl fyr­ir­bæri, útlend­ingur, þetta. Allt eru þetta orð sem voru notuð til þess að lýsa þátt­tak­anda í Söngvakeppn­inni af palest­ínskum upp­runa, Bashar Murad. Í umræðum sem sköp­uð­ust vegna þátt­töku hans var mikil áhersla lögð á að hann væri útlend­ingur, arabi og múslimi: „Mússal­ingur,“ eins og sumir köll­uðu það. „Það hefði verið nið­ur­lægj­andi fyrir þjóð­ina ef sér­stak­lega inn­fluttur feðra­maður hefði unnið af póli­tískum ástæðum sem snerta Ísland ekki á nokkurn hátt. Ferða­maður sem hefur ekki einu sinni atvinnu­leyfi á land­inu,“ skrif­aði einn sem sagð­ist hafa kjána­hroll yfir sam­löndum sínum sem studdu Bashar og lauk athuga­semd­inni með þeim orðum að það væri gott að „rugl­aða fólkið hafði ekki betur“.

Ákveðinn hópur tal­aði fyrir því að Íslend­ingar ættu að velja íslenskt. „Ég vona að Íslend­ingar kjósi íslenskt.“

Einhver metn­að­ar­fullur birti mynd af hvít­klæddri íslenskri val­kyrju með vík­inga­hjálm og skjöld með mynd af íslenska fán­anum sparka svíni með …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kalla Karlsdóttir skrifaði
    Það er óhætt að segja að ykkur þarna á þessu blaði leiðist ekki að endurbirta þessi ummæli sem koma á fésbókina svo allir lesendur blaðsins missi nú örugglega ekki af þeim.. Sveiattan....
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár