Myndir mínar gefa mér tilgang
Lista­maður Ljós­myndun er eitt form list­sköp­unar sem Jóhannes Hrefnu­son Karlsson hefur lagt fyrir sig. Sirku­slist, blöðru­list, þrí­vídd­arskúlp­t­úr­gerð, kerta­gerð og leik­list eru honum einnig hug­leikin. En ljós­mynd­unin átti sviðið við opnun sýn­ing­ar­innar Fyrir og eftir í síð­ustu viku. Mynd: Golli

Myndir mínar gefa mér tilgang

Ári eftir að Jóhannes Hrefnu­son Karlsson lá í dái á banda­rískum spít­ala opn­aði hann ljós­mynda­sýn­ingu á end­ur­hæf­ing­ar­deild Grensáss. Ljós­mynd­unin er hans leið í end­ur­hæf­ing­ar­ferl­inu til að tjá sig. Þá er mál­stolið, sem er hans stærsta áskorun eftir veik­indin, ekki að þvæl­ast fyrir. „Mynd segir meira en þús­und orð“ á svo sann­ar­lega við um Jóa.

Ljós­myndir fanga augna­blikið og búa til minn­ingar. En myndir eru meira en það fyrir Jóhannes Hrefnu­son Karlsson. „Fyrir mér eru ljós­myndir ein tján­ing­ar­leið. Myndir mínar vekja til­finn­ingar og segja sögu mína, en líka, gefa mér ein­hvern til­gang, eitt­hvað til að stefna að. Ég veit að það hljómar pínu klisju­legt, en ein mynd segir meira en þús­und orð. Sér­stak­lega hjá mér.“

Með „sér­stak­lega hjá mér mér“ á Jói, eins og hann er gjarnan kall­aður, við hans helstu áskorun sem hann hefur tek­ist á við síð­ustu 12 mán­uði en hann glímir við mikið málstol eftir að hafa fengið strept­ókokka­sýk­ingu í heila. Rúmt ár er síðan hann vakn­aði úr níu daga dái á banda­rískum spít­ala eftir að hafa veikst alvar­lega af strept­ókokkum í heila. Engin leið er að vita af hverju Jói fékk sýk­ing­una, þetta var bara óheppni, eins og Ylfa Rún Óla­dóttir, end­ur­hæf­ing­ar­læknir á Grens­ás­deild Land­spít­ala, orðar það.  

Grensás  – end­ur­hæf­ing­ar­deild Land­spít­ala …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár