Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mannorð sjálfboðaliða

Stofnandi og forseti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dvalar­leyfishöfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­samlega sturlað“ að fylgjast með ráðherrum í ríkis­stjórn Íslands, stofnunum og þingfólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálfboða­liðar séu að brjóta af sér „og jafnvel fremja lögbrot í viðleitni okkar til að koma fólki undan þjóðernis­hreinsunum.“

Skilur niðurlægingu stjórnvalda
Skilur nið­ur­læg­ingu stjórn­valda Sema Erla Serdoglu seg­ist vel skilja þá miklu nið­ur­læg­ingu sem stjórn­völd upp­lifi þegar íslenskir sjálf­boða­liðar hafa komið 20 palest­ínskum dval­ar­leyf­is­höfum út af Gaza og til Íslands og skráð hátt í 50 í við­bót til þess að fara yfir landa­mærin frá Gaza til Egypta­lands á næstu dögum þegar íslensk stjórn­völd hafi gert slíkt hið sama fyrir núll ein­stak­linga á sama tíma. Mynd: Davíð Þór

„Við höfum ítrekað greint frá því þegar við erum spurð að við erum ekki að greiða mútur og að við höfum kvittanir fyrir allri þeirri þjónustu sem við höfum greitt fyrir. Það vita þessir ráðherrar og þingmenn vel en halda þó áfram herferð sinni gagnvart almennum borgurum sem ekkert hafa af sér gert, nema kannski særa egóið þeirra!?“ Þetta segir Sema Erla Serdaroglu, stofnandi og forseti Solaris samtak­anna og aðjúnkt við Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands, í stöðu­uppfærslu á Facebook í gærkvöldi.

Tilefni færslunnar eru yfir­lýsingar þingmanna um að þeir einstaklingar sem hafa dvalið í Miðausturlöndum og hjálpað palestínskum dvalar­leyfishöfum út af Gaza til Íslands séu að greiða mútur.

Á meðal þeirra sem hafa haldið þessu fram er Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokks. Hann sagði í samtali við Heimildina í gær að hann hefði heyrt það að Egyptar krefjist greiðslna upp á 750 þúsund krónur fyrir fullorðna og 350 þúsund fyrir börn gegn því að hleypa fólki yfir landa­mærin frá Gaza. „Ég fékk þessar upplýsingar frá fólki sem starfar þarna niður frá. Ég get ekki gefið upp hverjir það eru. Ég hef heyrt hærri tölur líka.“ Aðspurður hvort íslensk stjórn­völd mættu ekki greiða landamæra­vörðum í Egypta­landi með slíkum hætti, því það væri einhvers konar lögbrot eða mútu­greiðslur svaraði Birgir því játandi. Það væri megin­ástæðan fyrir því að diplómatar utan­ríkis­þjónustunnar sem eru á svæðinu eru geti ekki gert það sama og íslenskir sjálfboða­liðar sem komið hafa fólki yfir landa­mærin í Rafah.

„Það sem utanríkisráðherra og skósveinar hans vilja að við séum að gera“

Sema segir í færslunni að það sé „alveg gjör­samlega sturlað að fylgjast með ráðherrum í ríkis­stjórn Íslands og stofnunum þeirra sem og Alþingis­fólki leggja sig markvisst fram við að sverta mannorð almennra borgara með því að ýja ítrekað að því að við sem erum í sjálfboða­liða­vinnu við að reyna að koma fólki undan þjóðar­morði í Palestínu séum að brjóta af okkur og jafnvel fremja lögbrot í viðleitni okkar til að koma fólki undan þjóðernis­hreinsunum.

Fjöldi þingfólks, sérstak­lega þingfólk Sjálfstæðis­flokksins, og annað áhrifa­fólk tengt flokknum, hafi nú vikum saman haldið því fram, beint eða óbeint, að þeir einstaklingar sem séu í sjálfboða­vinnu fyrir ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur við að koma palestínskum dvalar­leyfishöfum út af Gaza og til Íslands séu að greiða mútur. „Þó slíkar ásakanir séu að sjálfsögðu ekki svara­verðar, sérstak­lega þegar þær koma frá þing­mönnum sem hafa gerst sekir um að dreifa ísraelskum stríðs­áróðri og fals­fréttum á Alþingi, þá fer mikil orka í að svara ítrekað fyrir slíkar ásakanir, sem er einmitt það sem utan­ríkis­ráðherra og skósveinar hans vilja að við séum að gera.“

Hún snýr sér svo að frétta­tilkynningu sem utan­ríkis­ráðuneytið, sem stýrt er af Bjarna Benedikts­syni, sendi frá sér í gær. Þar sagði meðal annars: „Fyrir liggur að íslensk stjórn­völd munu eingöngu vinna eftir löglegum diplómatískum leiðum og fylgja þeim ferlum sem ísraelsk og egypsk stjórn­völd gera kröfu um. Ekki er því unnt á þessum tíma­punkti að fullyrða frekar um tímalínu málsins, en áfram verða veittar upplýsingar um fram­vinduna hér á vef ráðuneytisins.“

Árás valdhafa gegn almennum borgurum

Sema segir að í þessum hluta tilkynningarinnar sé ýjað sterklega að því að sá hópur sem hafi verið að koma palestínsku fólki sem er þegar komið með dvalar­leyfi á Íslandi yfir landa­mærin til Egypta­lands séu að gera það með ólöglegum hætti. „Hvers konar slíkar árásir (já ég sagði árás) valdhafa gegn almennum borgurum eru einungis þeim til minnkunar. Við höfum ítrekað greint frá því þegar við erum spurð að við erum ekki að greiða mútur og að við höfum kvittanir fyrir allri þeirri þjónustu sem við höfum greitt fyrir. Það vita þessir ráðherrar og þingmenn vel en halda þó áfram herferð sinni gagnvart almennum borgurum sem ekkert hafa af sér gert, nema kannski særa egóið þeirra!?“

Hún segist vel skilja þá miklu niður­lægingu sem stjórn­völd upplifi þegar íslenskir sjálfboða­liðar hafa komið 20 palestínskum dvalar­leyfishöfum út af Gaza og til Íslands og skráð hátt í 50 í viðbót til þess að fara yfir landa­mærin frá Gaza til Egypta­lands á næstu dögum þegar íslensk stjórn­völd hafi gert slíkt hið sama fyrir núll einstaklinga á sama tíma. „Við ásakanir um lögbrot verður þó ekki unað!“

Kjósa
81
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hanna Þorgrímsdóttir skrifaði
    Frábært framtak hjá henni og hennar fólki....
    4
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Mér hefur sínst Sema & félagar einfær um að sverta mannorð sitt og okkar sem ekkert viljum með þetta hafa ,enn bráðum kemur betri tíð með
    -11
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Var Bjarni ekki 3-4 vikur að finna símtólið þegar liðka átti til við björgun fólks frá Gaza ?
    Blessaður ráðherrann var sneggri að rífa upp símann þegar hann lokaði á fjárframlögin til UNWRA. Og nú berast fregnir af því að börn hafi dáið úr þorsta og vannæringu á sjúkrahúsum norðanvert á Gaza.
    En það þarf víst að forgangsraða við flókin og erfið mál. Þetta veit Bjarni 😶
    11
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Flott hjá Semu Erlu og félögum að koma fólki frá Gaza og sýna svo um munar að Íslensk stjórnvöld hafa engan áhuga á öðru en sýnast vera að gera eitthvað en að tjaldabaki vilja þau að umræddir einstaklingar verði vígvél Ísrael að bráð. Það er deginum ljósara að þessi stjórnvöld hér styðja þau þjóðarmorð sem nú eiga sér stað. Sjaldan hafa stjórnvöld hér lagst eins lágt og nú þegar þau styðja í reynd við þá satanísku stefnu sem Ísrael fylgir gagnvart palestínumönnum.
    10
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Eru ekki fulltrúar Bjarna-bandalagsins uppteknir í Dauða hafinu, sér til heilsubótar?
    Það kostar jú sitt.
    0
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Bíðið bara þetta er rétt að byrja, það sem gerist næst er að ELÍTAN fer að kalla þegna lansins "SKÆRULIÐA" og það þurfi að koma böndum á okkur, með lagasetningum, þar sem þeir fá tæki til að þagga niður frjálsan og óháðan fréttaflutning og persónulegar skoðanir.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

FréttirFöst á Gaza

Dvalar­leyfishafar senda kvörtun til umboðs­manns Alþingis

Móðir og þrjú börn hafa fengið samþykkta fjölskyldu­sameiningu á Íslandi en sitja enn föst á Gaza. Fjölskyldu­faðirinn er dvalar­leyfishafi á Íslandi. Lögfræðingur fjöl­skyldunnar hefur sent inn kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Er þar haldið fram að íslenska ríkið fari á mis við laga­ákvæði og alþjóðlegar skuld­bindingar með aðgerða­leysi sínu við að forða fólki frá stríðs­hrjáðum svæðum á Gaza.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár