„Mig hefur langað síðan ég las Ástu Sigurðardóttur að sprengja upp heilann á konum. Brjóta tabú,“ segir Elísabet Jökulsdóttir um leikverkið Saknaðarilm – sem er bæði byggt á samnefndri bók og Aprílsólarkulda eftir hana. Óhætt er að segja að persóna verksins, leikin af Unni Ösp Stefánsdóttur, tendri þar hugrenningatengsl við Ástu Sigurðar og verk hennar.
Unnur Ösp skrifaði leikgerðina sem eiginmaður hennar, Björn Thors, leikstýrir. Hún talar við sjálfa sig og áhorfendur og orðin svífa:
Sko, ég hef ég verið að raða hlutum, málverkum og húsgögnum núna í eitt og hálft ár síðan að mamma dó þar til ég settist niður eitt kvöldið og spurði sjálfa mig: – Af hverju geturðu ekki hætt að raða? Hvað ertu að fela?
Áföllin koma aftur og þau koma aftur og aftur. Áföllin sjá sér leik á borði, einhver atburður vekur þau og veröldin fyllist saknaðarilmi.
Athugasemdir