Gráthlógu yfir Vaðlaheiðargöngum eða vildu komast út

Verk um eina umdeild­ustu vega­fram­kvæmd Íslands­sög­unnar vekur mis­jöfn við­brögð rétt eins og lag Vand­ræða­skálda um göngin – sem hófst á orð­unum „það vilja allir fara inn í mig en það vill eng­inn borga fyrir það“ – gerði á sínum tíma.

Gráthlógu yfir Vaðlaheiðargöngum eða vildu komast út
Á sigl­ingu Hér til hægri má sjá atriðið til vinstri end­ur­gert: Þegar Einar Hrafn stað­ar­stjóri í Vaðla­heið­ar­göngum og Bjarki Laxdal skoð­uðu aðstæður inni í göng­unum úr ára­bát. Mynd: Samsett:Vaðlaheiðargöng/Owen Feine

Það vilja allir fara inn í mig, en það vill eng­inn borga fyrir það,“ sungu Vand­ræða­skáldin Sesselía Ólafs­dóttir og Vil­hjálmur B. Bragason á litlu svörtu fær­an­legu sviði inni í Vaðla­heið­ar­göngum við opnun þeirra í jan­ú­ar­mán­uði 2019. Þau vildu gefa umdeildum göng­unum rödd. „Verið vel­komin inn, verið vel­komin inn í mig,“ klykktu þau út með af inn­lifun. Sumir hlógu, van­þóknun birt­ist á and­litum ann­arra. 

Í byrjun febr­úar fylgd­ist Vil­hjálmur með því þegar skraut­leg fram­kvæmd gang­anna var end­ur­gerð á Nýja sviði Borg­ar­leik­húss­ins, þar sem lagið var end­ur­flutt af leik­ur­unum Aðal­björgu Árna­dóttur, Hilmi Jenssyni og Kolbeini Arn­björns­syni. 

„Þó að ég sé sjálfur leik­ari og vinni við leik­hús þá er maður ekki vanur því að sjá við­burði sem maður hefur verið partur af sjálfur lifna við á svið­inu þannig að það var sér­stakt en mjög gaman,“ segir Vil­hjálmur. Honum þótti leik­hópnum Verk­fræð­ingum takast vel upp við að end­ur­skapa stemn­ing­una á opn­un­ar­há­tíð­inni þar sem meðal …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár