Sér manninn sinn í augum dætranna
Tatiyana og yngri dóttir hennar Solomiya. Mynd: Óskar Hallgrímsson

Sér manninn sinn í augum dætranna

Úkra­ínskur góð­gerð­ar­sjóður fyrir börn sem hafa misst for­eldri í stríð­inu í Úkraínu er sem stendur að aðstoða næstum 7.500 manns. Kona sem missti mann­inn sinn, og föður barna sinna, í stríð­inu sá aug­lýs­ingu um sjóð­inn á Instragram og segir hann frá­bæran.

Barna­hetjur, eða Children her­oes á ensku, er úkra­ínskur góð­gerð­ar­sjóður sem skuld­bindur sig til að veita lang­tíma­að­stoð til barna sem hafa misst annað eða báða for­eldra í stríð­inu í Úkraínu. Sjóð­ur­inn veitir börn­unum og fjöl­skyldum þeirra alhliða aðstoð þar til börnin verða 18 ára. Þar má nefna alla mann­úðar- og neyð­ar­að­stoð, sál­fræði­þjón­ustu og með­ferð, lög­fræði­að­stoð, tryggða menntun og útvegun á mat, hlýjum fatn­aði og húsa­skjól. Með það að mark­miði að styrkja börn og for­eldra til að sigr­ast á mót­læti, end­ur­byggja líf sitt og skapa bjart­ari fram­tíð fyrir sig og Úkraínu.

Kateryna Pozinenko er ein af stofn­endum sjóðs­ins. Hún er upp­runa­lega frá borg­inni Avdiivka í aust­ur­hluta lands­ins sem tölu­vert hefur verið í fjöl­miðlum upp á síðkastið. Þar hafa geisað harðir bar­dagar síðan í októ­ber og talið er að um 13 þús­und Rússar hafi fallið eða slasast alvar­lega á rúm­lega þremur mán­uðum síðan áhlaup þeirra hófst á borg­ina. Margur les­and­inn mun kann­ast við …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár