Skautun innan ríkisstjórnar í málefnum flóttamanna
Skuggi flótta­manna­mála Stefna flokks Katrínar Jak­obs­dóttur í mál­efnum flótta­manna er allt önnur en sú stefna sem birt­ist í nýlegum yfir­lýs­ingum fjöl­margra for­ystu­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem er með Vinstri grænum í rík­is­stjórn. Katrín hefur ekki tjáð sig efn­is­lega um nýleg ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar sem hafa verið gagn­rýnd fyrir að inni­halda útlend­inga­andúð. Mynd: Golli

Skautun innan ríkisstjórnar í málefnum flóttamanna

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og fylgj­endur hans boða nú nýjan og harð­ari tón í mál­efnum flótta­fólks en áður hefur heyrst frá for­ystu hans. Sá tónn er í and­stöðu við stefnu Vinstri grænna, flokks for­sæt­is­ráð­herra, sem hefur varað við skautun í mála­flokknum, sagt að ekki væri hægt að líða orð­ræðu sem feli í sér hatur og tor­tryggni gagn­vart inn­flytj­endum og sagt hana leiða af sér „að fólk velur sér sann­leika, óháð stað­reyndum og breiðir þannig út hæpnar og jafn­vel rangar upp­lýs­ingar“.

Mið­viku­dag­inn 17. jan­úar birti dóms­mála­ráðu­neytið, stýrt af Guðrúnu Haf­steins­dóttur, til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins með yfir­skrift­inni „Stað­reyndir um vernd­ar­um­sóknir og fjöl­skyldu­sam­ein­ingar“. Til­gangur hennar var að varpa ljósi á að fleiri Palest­ínu­menn sæki um hæli á Íslandi en í hinum Norð­ur­lönd­unum, að flestir þeirra hafi þegar hlotið vernd í öðrum Evr­ópu­löndum og að Íslandi beri ekki skylda, sam­kvæmt túlkun ráðu­neyt­is­ins, til að aðstoða þá Palest­ínu­menn sem hafa hlotið dval­ar­leyfi hér­lendis á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar að kom­ast hingað. 

Tilefni til­kynn­ing­ar­innar var að bregð­ast við umfjöllun og umræðu um mót­mæla­gjörn­ing sem staðið hafði frá 27. des­em­ber. Þá fengu nokkrir Palest­ínu­menn og stuðn­ings­fólk þeirra leyfi til þess að reisa litlar tjald­búðir fyrir framan Alþing­is­húsið. Með mót­mæl­unum vildu Palest­ínu­menn­irnir sem dvelja í tjöld­unum kalla eftir að fjöl­skyldu­með­limum þeirra, sem þegar hafa fengið sam­þykkt dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, yrði komið af Gasa­svæð­inu hið snarasta. Rúmlega 150 Palest­ínu­menn fengu sam­þykkt dval­ar­leyfi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar á síð­asta ári …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Þetta er það sem við blasir. En hvernig upplifa VG liðar og -forysta þessa gliðnun? Fróðlegt væri að fá umfjöllun um það.
    1
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Á Austurvelli er stytta af frægasta mótmælanda Íslands og inni í Alþingishúsinu er málverk af honum þar sem hann var að mótmæla. Á málverkum og teikningum frá 1730-1750 eru tjöld og hestar á Austurvelli við Dómkirkjuna. Er Bjarni ekki betur að sér en þetta?
    3
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Bjarni fetar í spor Mette Fredriksen. Henni tókst að auka fylgið með að taka harðar á flóttamönnum. Gagnrýni á tjöldin var lágt útspil til að kanna vilja flokksmanna áður en farið verður í meiri hörku.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár