Fjölskylda Lúðvíks vill „heiðarlega“ rannsókn

Fjöl­mörgum spurn­ingum er enn ósvarað um ákvarð­ana­töku og atburða­rás í aðdrag­anda þess að Lúðvík Pét­urs­son féll ofan í sprungu sem lá í gegnum húsa­garð í Grinda­vík. Veð­ur­stofan hafði sér­stak­lega varað við sprungu­hreyf­ingum en áhættu­mat lá ekki enn fyrir.

Fjölskylda Lúðvíks vill „heiðarlega“ rannsókn

Þær fóru að sjást í veggjum húsa. Svo á Grinda­vík­ur­veg­inum. Allt hafði verið á hreyf­ingu vikum saman. En síðan varð fjand­inn laus. „Stór og löng sprunga hefur opn­ast á nokkrum stöðum í og við Grinda­vík,“ sagði í Facebook-færslu Eld­fjalla- og nátt­úru­vá­r­hóps Suð­ur­lands degi eftir að bær­inn hafði verið rýmdur aðfara­nótt 11. nóv­em­ber.

Sigdalur hafði mynd­ast á yfir­borði ofan við kviku­gang­inn sem hafði þrýst sér undir bæinn líkt og heitur ormur. Flestar ef ekki allar þær sprungur sem opnað höfðu ginið framan í Grind­vík­inga, í göt­unum sem þeir óku, stétt­unum sem þeir gengu, jafn­vel í görðum húsa þeirra, voru ekki nýjar. Þarna höfðu þær verið í aldir. Þúsundir ára. En tím­inn hafði að miklu leyti hulið þær gróðri og jarð­vegi. Og mann­anna verkum.

Þær héldu áfram að gliðna. Ýfa sig. Reykja­nes­eldar voru hafnir. Þrjú eld­gos höfðu orðið í næsta nágrenni á innan við þremur árum og það fjórða braut …

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Viggó Jörgensson skrifaði
    Viđ sáum íbúa, björgunarsveitarmenn, fjölmiđlamenn, vísindamenn og verktaka í fjölmiđlum. Ađ skođa þessar sprungur, sigdali o.s.frv. Enginn í belti eđa bandi. Engar fallvarnir eins og kveđiđ er á um í vinnuverndarlöggjöf þegar unniđ er í hæđ. Hver átti von á þessum ósköpum ađ sprungurnar víkkuđu þegar neđar dró? Eđa var þađ nýtt?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Féll í sprungu í Grindavík

Ekkert skriflegt áhættumat og skipulag aðgerða „nokkuð óreiðukennt“
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Ekkert skrif­legt áhættu­mat og skipu­lag aðgerða „nokkuð óreiðu­kennt“

Vinnu­eft­ir­litið segir að velta megi fyrir sér hvort að fyll­ing í sprungu við íbúð­ar­hús í Grinda­vík hafi verið áhætt­unnar virði. Þegar áhætta sé metin ætti fyrsta spurn­ingin alltaf að vera hvort „algjör­lega nauð­syn­legt“ sé að fram­kvæma til­tekið verk. Eft­ir­litið hefur lokið rann­sókn sinni á hvarfi Lúðvíks Pét­urs­sonar.
Tilgangsleysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík
AfhjúpunFéll í sprungu í Grindavík

Til­gangs­leysi og gáleysi lýst í rann­sókn slyss­ins í Grinda­vík

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmdir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu húsið rúmum mán­uði áður en að verk­taki lést við sprungu­fyll­ingu við húsið. Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing vísar ábyrgð á und­ir­verk­taka sinn, Eflu, sem segir engar kröfur hafa verið gerðar um áhættu­mat á verk­staðnum. Lögregla hafði lokið rann­sókn en hóf hana aftur, af ókunnum ástæðum.
Spurði ráðherra hvort til stæði að rannsaka aðdraganda slyssins í Grindavík
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Spurði ráð­herra hvort til stæði að rann­saka aðdrag­anda slyss­ins í Grinda­vík

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag hvort til stæði að rann­saka að­drag­anda þess að Lúð­vík Pét­urs­son féll í sprungu í Grinda­vík. „Í kjöl­far slyss­ins hef­ur kom­ið fram ósk að­stand­enda um að far­ið verði í sjálf­stæða og óháða rann­sókn á til­drög­um slyss­ins.“
Leituðu svara en fengu símsvara
ViðtalFéll í sprungu í Grindavík

Leituðu svara en fengu sím­svara

Enginn af þeim sem kom að ákvörð­unum eða bar ábyrgð á málum í Grinda­vík, þegar Lúðvík Pét­urs­son hvarf ofan í sprungu, hefur sett sig í sam­band við börn hans eða systk­ini eftir að leit að honum var hætt. „Ósvöruðum spurn­ingum hefur bara fjölgað,“ segir Elías Pét­urs­son, bróðir hans. Það sé sorg­lega íslenskt að þurfa að stíga fram og berj­ast fyrir óháðri rann­sókn. Óboðlegt sé að yfir­völd rann­saki sig sjálf.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár