Stríð magna upp menningarátök
Rektorar þriggja virtra banda­rískra háskóla sátu í fimm klukku­stundir undir spurn­ingum þing­nefndar sem leiddi til afsagnar tveggja þeirra. Mynd: AFP

Stríð magna upp menningarátök

Magnús Þorkell Bern­harðs­son, pró­fessor í sögu Mið-Aust­ur­landa í Banda­ríkj­unum, lýsir því hvernig menn­ing­ar­á­tökin hafa stig­magn­ast þar í landi, sam­hliða stig­mögnun stríðs­ins fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Í Banda­ríkj­unum snú­ast deil­urnar meðal ann­ars um að gagn­rýni á Ísrael sé lögð að jöfnu við gyð­inga­hatur, eins og í Þýska­landi og víðar í Evrópu. Hér er umræðan svipuð, um að mót­mælin gegn stríðs­á­tök­unum hafi gengið of langt þótt deilan snú­ist helst um hvernig tekið sé á útlend­inga­málum.

Magnús Þorkell Bern­harðs­son er pró­fessor í sögu Mið-Aust­ur­landa við virtan banda­rískan háskóla, elítu­skóla, eins og hann lýsir honum sjálfur í sam­tali við Heim­ild­ina. Í skól­anum þar sem hann kennir, Williams College í Massachusetts, eru bæði nem­endur og starfs­fólk skól­ans hrætt. Samkvæmt Magnúsi ein­skorð­ast hræðslan ekki við hans skóla eða það fólk sem þar starfar heldur ríki ótti og spenna í banda­rísku háskóla­sam­fé­lagi, sér­stak­lega eftir að þrjár konur, þrír for­setar áber­andi og virtra menn­ing­ar­stofn­ana, hafa setið undir árásum þing­manna, fjöl­miðla, fjár­festa og almenn­ings sem neyddi tvær þeirra til að segja upp störfum. Óvíst er hvort eða hvenær sú þriðja muni segja upp störfum, en það sem Magnús Þorkell veit fyrir víst er að afsögn þess­ara kvenna „mun draga dilk á eftir sér“ eins og hann orðar það.

Magnús Þorkell Bern­harðs­son, pró­fessor í sögu Mið-Aust­ur­landa

Það var á öðrum degi nýs árs sem Claudine Gay …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GE
    Gísli Einarsson skrifaði
    Mjög góð grein eins og vænta mátti þegar Magnús Þorkell á í hlut! Yfirburða þekking hans a sögu og menningu Mið-Austurlanda rennir ávallt góðum stoðum undir það sem hann segir! Magnús ólst upp á svæðinu og lærði Arabísku snemma. Fyrir alla sem vilja læra meira er bók hans “Mið-Austurlönd - Fortíð, Nútíð og Framtíð”: (Mál og Menning 2018), afburða góður grunnur að skilningi á flókinni stöðu mála. Gísli Einarsson
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár