Edda Björk dæmd í 20 mánaða fangelsi

Edda Björk Arnar­dóttir hefur verið dæmd í 20 mánaða fangelsi. Hún var framseld til Noregs eftir að hún nam þrjá syni sína á brott frá landinu. Hefur hún staðið í lang­dregnum forsjá­deilum við fyrr­verandi mann sinn.

Edda
Edda

Edda Björk Arnar­dóttir var í dag dæmd í 20 mánaða fangelsi í Noregi. Þetta stað­festir Leifur Runólfsson, lögmaður barns­föður Eddu, í samtali við Vísi. Nútíminn greindi fyrst frá. 

Edda var handtekin á Íslandi og framseld til Noregs í desember. Þar hefur verið réttað yfir henni fyrir að nema börn sín á brott frá Noregi.

Samkvæmt upplýsingum Vísis var Edda dæmd til að greiða 35 þúsund norskar krónur í miska­bætur og 75 þúsund norskar krónur í annan kostnað. Eru það samtals um 1,5 milljónir íslenskra króna.

Handtaka Eddu

Edda var handtekin í lok nóvember í fyrra vegna ákæru á hendur henni. Hún var sett í gæslu­varðhald á Hólms­heiði. Í kjölfarið voru dren­girnir fluttir í felur af aðstand­endum Eddu. Var þeirra leitað þar til 21. desember. Eftir að þeir fundust fóru þeir samdægurs í flug til Noregs með föður sínum.

Edda var ákærð fyrir að hafa rænt þremur sonum sínum frá barns­föður sínum í tvígang. Norskir dómstólar gerðu Eddu að skila börnunum aftur til föðurins en hún gerði það ekki. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mál Eddu Bjarkar

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár