Aðskilnaður fátækra og ríkra aukist í Reykjavík

Aðskilnaður fátækra og ríkra aukist í Reykjavík

Ein­angrun lág­tekju­fólks í Reykja­vík hefur auk­ist síð­ustu 20 ár sam­kvæmt nýrri rann­sókn. Fátækt fólk er að nokkru leyti aðskilið frá milli- og hátekju­fólki og ójöfn­uður milli skóla­hverfa hefur farið vax­andi frá árinu 2012.

Í rann­sókn, sem Kolbeinn H. Stef­áns­son, dós­ent við félags­ráð­gjafa­deild Háskóla Íslands, gerði og birt verður í dag, segir að lág­tekju­fólk sé að nokkru leyti aðskilið frá bæði milli- og hátekju­fólki í búsetu innan Reykja­víkur. Þessi aðskiln­aður hefur sam­kvæmt rann­sókn­inni auk­ist milli áranna 2000 og 2020.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar benda enn fremur til vax­andi ein­angr­unar lág­tekju­fólks á áður­nefndu tíma­bili og að ójöfn­uður á milli skóla­hverfa hafi auk­ist frá árinu 2012. Samkvæmt þessu hefur aðskiln­aður milli hópa eftir tekjum auk­ist í Reykja­vík, ein­angrun lág­tekju­fólks er orðin meiri en hún var og þegar sjónum er beint að skóla­hverfum sér­stak­lega hefur ójöfn­uður auk­ist síð­ustu tólf ár. 

„Aðskiln­aður í búsetu innan Reykja­víkur ein­kenn­ist fremur af auk­inni ein­angrun lág­tekju­fólks en að hátekju­fólk sé að flýja sam­býli við tekju­lægri hópa“
Úr skýrsl­unni


Í skýrsl­unni segir að hvað varði stöðu skóla­hverfa sér­stak­lega, standi tvö hverfi upp úr …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Betra að vera fátækur og hjartahreinn en ríkur og vitlaus valdandi skaða allstaðar
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu