Konur bera þungann af samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs
Jafnrétti Konur bera meiri þunga en karlar af vinnuálagi vegna heimilisstarfa og barnauppeldis; annarri og þriðju vaktinni, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Mynd: Golli
Þessi grein birtist fyrir rúmlega 12 mánuðum.

Konur bera þungann af samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs

Kon­ur draga frek­ar úr laun­aðri vinnu en karl­ar til að sinna ólaun­uð­um störf­um inn­an veggja heim­il­is­ins. Kon­ur lengja sömu­leið­is frek­ar fæð­ing­ar­or­lof og bera mun meiri ábyrgð á sam­skipt­um við skóla barna. Átta pró­sent karla hafa aldrei áhyggj­ur af verk­efn­um heim­il­is­ins og umönn­un barna.

Konur eru frekar í hlutastarfi en karlar, bera meiri ábyrgð á umönnun barna eftir að fæðingarorlofi lýkur, sjá frekar um samskipti við skóla og frístund og hafa frekar áhyggjur af verkefnum heimilisins og umönnun barna þegar þær eru í vinnunni. Þá hafa konur í meira mæli en karlar valið sér starfsvettvang til þess að auðvelda samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Þrátt fyrir eina mestu atvinnuþátttöku íslenskra kvenna í heiminum, og að Ísland skorar mjög hátt í alþjóðlegum samanburði á jafnrétti kynjanna, draga konur frekar úr launaðri vinnu en karlar. Konur bera sömuleiðis enn þá meiri þunga af vinnuálagi vegna heimilisstarfa og barnauppeldis; annarri og þriðju vaktinni. 

Nær allir feður í fullu starfi

Niðurstöðurnar byggja á spurningakönnun meðal foreldra barna á aldrinum 12 mánaða til 12 ára. Þar kemur m.a. fram að 68 prósent …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár