Ætluðu að skila hagnaði á seinni hluta ársins en rekstrartapið nú þegar orðið 47 milljarðar

Alvotech heldur áfram að tapa tugum millj­arða króna og enn er beðið eftir því að félagið fái mark­aðs­leyfi fyrir líf­tækni­hlið­stæður í Banda­ríkj­unum. Ísra­elskt lyfja­fyr­ir­tækið er á meðal þeirra sem keyptu breyti­leg skulda­bréf af Alvotech á þriðja árs­fjórð­ungi.

Ætluðu að skila hagnaði á seinni hluta ársins en rekstrartapið nú þegar orðið 47 milljarðar
For­stjór­inn Róbert Wessman, í miðið, er for­stjóri, stjórn­ar­for­maður og stærsti eig­andi Alvotech. Hann sést hér með hópi sam­starfs­manna þegar bréf í Alvotech voru tekin til við­skipta á hluta­bréfa­mark­aði í Banda­ríkj­unum í fyrra­sumar. Mynd: Nasdaq

Alvotech tap­aði 275,2 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða um 38 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2023. Inni í þeirri tölu er þó skatta­legt tap upp á 9,3 millj­arða króna sem félagið færir sem tekjur í árs­reikn­ingi sínum. Rekstr­ar­tap Alvotech frá ára­mótum og út sept­em­ber­mánuð var 342,3 milljón Banda­ríkja­dala, eða 47,2 millj­arðar króna. Rekstr­ar­tapið á þriðja árs­fjórð­ungi var gríð­ar­legt, eða 153,2 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Það þýðir að Alvotech tap­aði 21,1 millj­arði króna á þremur mán­uðum, eða um 230 millj­ónir króna á dag frá byrjun júlí­mán­aðar og út sept­em­ber. 

Tapið er í and­stöðu við það sem Alvotech boð­aði í lok síð­asta árs, þegar félagið færði sig yfir á aðal­markað Kaup­hallar Íslands. Þá tók mark­aðsvirði þess risa­stökk upp á við með þeim afleið­ingum að Alvotech varð verð­mætasta skráða félagið á Íslandi þrátt fyrir að hafa tapað um 70 millj­örðum króna árið 2022 og 12,9 millj­örðum króna á árinu 2021. …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Rétt að vona að snillingarnir í lífeyrissjóðunum séu ekki að fjármagna þessa hít.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár