Ávextir og ber Silki­toppur gæða sér á eplum í garði í Breið­holti nýverið. Þær hafa sést víða um land síð­ustu daga. Mynd: Veronika Bjarnardóttir

„Afbragðsfallegir“ flækingar fylla garða

Fugla­vinir hafa vart undan við að setja epli og ber út í garða sína til að seðja hópa af góðum gestum sem eru komnir hingað í ætis­leit, lík­lega frá Skand­in­avíu. Silki­topp­urnar fögru hafa und­an­farnar vikur sést víða um land.

Það er ef til vill að bera í bakka­fullan læk­inn að setja inn fleiri silki­toppu­myndir en hér kemur samt ein til við­bótar, tekin í fyrra­dag á Fáskrúðs­firði,“ skrifar fugla­vinur á vin­sæla Facebook-síðu þar sem fólk deilir sögum og myndum af fuglum í íslenskri nátt­úru.

„Þær eru nú ansi fal­legar bless­aðar silki­topp­urnar,“ skrifar annar og deilir mynd af þeim úr garð­inum sínum á Selfossi.

Þær eru líka í Reykja­vík. Húsavík. Akureyri. Ólafs­firði. Hafn­ar­firði. Akranesi. Borg­ar­nesi. „Garð­partí,“ skrifar kona í Kópavogi og birtir mynd­band af fjölda silki­toppa að narta í epli í garð­inum hennar.

Mynd­irnar sem þess­ari grein fylgja tók Veronika Bjarn­ar­dóttir í Reykja­vík.

Þessi lit­skrúð­ugi fugl, silki­toppan, hefur því glatt fjölda lands­manna síð­ustu vikur, með grá­bleika topp­inn sinn á höfði og gulum, svörtum og hvítum vængjum sem oft eru líka með ein­kenn­andi skær­bleikum lit. Þær eru komnar nokkuð langt að, lík­lega frá barr­skógum Skand­in­avíu, en þegar vart verður fæðu­skorts í heim­kynnum þeirra leggj­ast þær á flakk og sjást þá í vest­an­verðri Evrópu, meðal ann­ars á Íslandi. Í þeim árum sem þær ber­ast hingað sjást þær vana­lega frá miðjum októ­ber fram í apríl.

Í trjánumSilki­toppa tyllir sér á grein í garði í Reykja­vík.

En svo margar eru þær nú hér á landi að fugla­síð­urnar á Facebook eru fullar af myndum af þeim.

„Jú, þetta eru ansi margar silki­toppur,“ segir Tómas Grétar Gunn­ars­son, dýra­vist­fræð­ingur hjá Rann­sókn­ar­setri Háskóla Íslands á Suð­ur­landi, spurður um hvort fjöld­inn sé óvenju­legur þennan vet­ur­inn.

Silki­toppur eru ein þeirra fugla­teg­unda sem stunda svo­kallað rás­far (e. irruption), þ.e. stórir hópar leggj­ast í til­vilj­ana­kennt flakk. Tómas segir rétt að hingað til hafi þetta verið tengt við fæðu­fram­boð í heima­högum þeirra. Að þegar stofn­inn sé stór eftir gott sumar verði sam­keppni um fæð­una meiri og flakk þeirra hefj­ist. „En reyndar var að koma út ný grein um þetta um dag­inn sem dregur þessar skýr­ingar í efa og bendir á að málið sé mun flókn­ara,“ segir hann.

Hver sem skýr­ingin er koma þær stundum til Íslands og sjást stundum um nán­ast allt land en eru fáar þess á milli.

Aðalfæða silki­toppa yfir varp­tím­ann eru skor­dýr en yfir vet­ur­inn nær­ast þær fyrst og fremst á ávöxtum, berjum og brumi. Það er þess vegna sem þær sækja í garða hjá íslenskum fugla­vinum sem setja út epli og annað góð­gæti fyrir smá­fugla að hausti og vetri.

En hvað verður um þær bless­aðar, hafa þær vet­ur­dvöl á land­inu?

Halló!Þær eru komnar langt að og eru svangar eftir flugið.

„Það er spurn­ing,“ segir Tómas. „Yfir­leitt fréttum við lítið af afdrifum flæk­ings­fugla sem koma hingað. Líklega drep­ast sumir og aðrir kom­ast til baka. Eitt eða tvö til­felli til af flæk­ings­spör­fuglum sem hafa verið merktir hér og end­ur­heimt­ast svo erlendis. Silki­toppa er reyndar harð­gerður fugl, heldur störum til dæmis á mott­unni á fóð­ur­stöðum og þær gætu vel kom­ist flestar til baka. Fuglar hafa yfir­leitt ágætan kompás „heim“,“ útskýrir hann.

Dæmi eru um að silki­toppur hafi orpið á Íslandi. Stað­fest­ing á því fékkst í fyrsta sinn sum­arið 2011. Þá setti maður sig í sam­band við sér­fræð­ing Umhverf­is­stofn­unar í Mývatns­sveit og sagð­ist hafa séð „ein­kenni­lega fugla“ á þeim slóðum. Sér­fræð­ing­ur­inn fór á vett­vang og stað­festi að um silki­toppur var að ræða. Sáust for­eldrar fæða fjóra unga sína á berjum og flugum. Veturinn á undan höfðu óvenju margar silki­toppur sést á landi og því aug­ljóst að ein­hverjar þeirra hafi ekki snúið „heim“ til Skand­in­avíu.

„En þetta er sjald­gæft,“ segir Tómas spurður hvort að þetta gæti end­ur­tekið sig. Ungarnir þurfi mikið prótein og fitu. „Þær gætu eflaust komið upp ungum á skor­dýra­fæðu hér,“ segir hann en vet­ur­seta gæti orðið erf­ið­ari því í íslenskri nátt­úru er ekki mikið af berja­runnum. Það er því fyrst og fremst garða­fóðr­unin sem gerir þeim kleift að dvelja á land­inu nú.

Hann seg­ist skilja vel það flóð af myndum af silki­toppum sem birt­ast nú á fugla­hóp­unum á Facebook. Silki­toppan er sjald­séður gestur, svona yfir­leitt, og „já, afbragðs­fal­leg“.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár